Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Egyptarnir sviku loforð og koma ekki til Íslands fyrir HM í janúar

Read Full Article →

Ekkert verður af æfingaleikjum Íslands og Egyptalands í janúar í aðdraganda Heimsmeistaramótsins í handbolta. Egyptarnir sviku loforð sín að sögn Jóns Halldórssonar formanns HSÍ. Handkastið greindi frá því í morgun að leikirnir, sem áttu að fara fram 7. og 9. janúar, myndu ekki fara fram. Jón Halldórsson, formaður HSÍ, staðfestir þetta í samtali við RÚV og segir Egyptana einfaldlega hafa svikið loforð sín og að það séu mikil vonbrigði. Samningar höfðu náðst milli HSÍ og egypska handboltasambandsins um að íslenska liðið kæmi til Egyptalands og spilaði æfingaleiki í maí og það egypska kæmi svo til Íslands í janúar og spilaði æfingaleiki í aðdraganda HM. Liðin mættust í Egyptalandi í maí en nú hefur egypska sambandið ákveðið að koma ekki til Íslands í janúar og halda sitt eigið æfingamót frekar fyrir HM. Jón Halldórsson segir íslenska liðinu hafa boðist að taka þátt í því móti en HSÍ hafi ekki samþykkt það. Ástæðan fyrir því sé aðallega tvíþætt, bæði vilji HSÍ reyna að stytta eins og hægt er þann tíma sem landsliðið þarf að dvelja erlendis í aðdraganda og meðan á stórmóti stendur og Jón tekur sem dæmi að liðið hafi verið í útlöndum í 31 dag í kringum EM í janúar. „Hin ástæðan er sú að við viljum, bæði með karla- og kvennalandsliðið, færa það nær þjóðinni og fjölga leikjum hér á Íslandi,“ segir Jón. Leikirnir við Egypta áttu að verða fyrstu leikirnir síðan 2018 sem íslenska liðið spilaði á heimavelli í aðdraganda stórmóts og vilji HSÍ er að halda þessum leikjum á heimavelli. Nú stendur því yfir vinna hjá HSÍ við að finna nýjan andstæðing sem er tilbúinn að koma til Íslands. Jón er bjartsýnn á að andstæðingar finnist þó að það sé ekki auðvelt þar sem flest lið séu með löngu ákveðna dagskrá.

Share this article