Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Eldflaug laskaði olíuflutningaskip á Hormússundi Markús Þ. Þórhallsson Olíu- og flutningaskip í Ómanflóa. AP / Uncredited Eldflaug hæfði olíuflutningaskip á siglingu um Hormússund undan ströndum Óman. Nokkrar skemmdir urðu á vélarrúmi skipsins en engan úr áhöfninni sakaði samkvæmt upplýsingum Siglingamálastofnunar breska flotans. Þar segir að tilkynning hafi borist frá skipstjóra olíuflutningaskipsins þessa efnis og að sigling þess hafi verið stöðvuð vegna skemmda á vél. Ekki er enn vitað hver skaut flauginni. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Ósammála feðgar um ESB: „Við tjáum ást okkar með því að rífast“ Skoðanaágreiningur feðga sem deila miklum áhuga á stjórnmálum hefur sett lit sinn á fjölskylduboð í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Þeir áttuðu sig þó á því að þeir þyrftu að geta rætt saman á rólegu nótunum, ekki síst fyrir aðra í fjölskyldunni. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Fjölskyldur flóttamanna sem fórust í jarðskjálftunum krefjast bóta og afsökunarbeiðni Fjölskyldur 146 venesúelskra flóttamanna sem fórust í jarðskjálftunum í júní krefjast afsökunarbeiðni frá stjórnvöldum. Þeir létu lífið í haldi yfirvalda skömmu eftir að þeir voru fluttir frá Bandaríkjunum. Vitað er að rúmlega 6.500 fórust. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Hvern viljum við hringja í“ þegar ráðist er á Ísland? Sóley Kaldal, sérfræðingur í alþjóðlegum öryggismálum, er ekki tilbúin að segja til um hverjir verði raunverulegir bandamenn Íslands ef til árásar kæmi. Gestir Silfursins voru sammála um mikilvægi varnarmála í aðdraganda þjóðaratkvæðis um ESB-viðræðu Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Segir samning við ESB verða að tryggja fullt forræði yfir fiskveiðistjórninni Utanríkisráðherra segir það skilyrði að Ísland nái skýrri niðurstöðu varðandi bæði sjávarútveg og landbúnað ef til aðildarviðræðna við ESB kemur. Brýnt verði að byrja á erfiðustu köflum samningsins. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Vona að kjötmjöl geri gæfumuninn á Hólasandi Sérfræðingar hjá Landi og skógi binda vonir við kjötmjölsdreifingu til Landgræðslu. Áburðurinn hefur reynst vel á Suðurlandi og nú hefur hundrað tonnum verið dreift yfir Hólasand. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Segja upp skólaliðum og útvista störfum Borgin hefur sagt upp hópi skólaliða og útvistar störfum þeirra. Formaður Sameykis segir þetta eins og olíu á eldinn í kjaramálunum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Vinsælt leikfang veldur áhyggjum Það þarf að vera var um sig, segir leikskólakennari eftir að skynjunarleikfang sprakk í höndum barns hennar og úr því lak ókennilegt gums. Mörg dæmi eru um slíkt og eftirlitsstofnanar fá ábendingar. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Dregið úr leitinni við Stuðlagil þegar myrkva tekur Enn er leitað að manninum sem féll í Jökulsá á Brú, í Stuðlagili á Jökuldal, fyrr í dag. Dregið verður úr leitinni þegar myrkva tekur en haldið áfram á fullum krafti í birtingu. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Aftur vann Fram Blika í sjö marka leik Fram vann 4-3 sigur á Breiðabliki í lokaleik 20. umferðar í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Fram hefur þar með 43 stig í 3. sæti sem er sami stigafjöldi og KR hefur í 2. sæti. Breiðablik er í 4. sæti með 30 stig. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Xabi Alonso hafði betur gegn Arbeloa í Lundúnaslag Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Xabi Alonso og Alvaro Arbeloa voru samherjar bæði í Liverpool og Real Madríd. Þeir mættust í kvöld á hliðarlínunni. IMAGO Chelsea vann 3-2 sigur á Fulham í lokaleik 1. umferð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Þetta var fyrsti deildarleikur Chelsea undir stjórn Spánverjans Xabi Alonso og fyrsti deildarleikur Fulham undir stjórn Alvaro Arbeloa. Sá fyrrnefndi stýrði Real Madríd á síðustu leiktíð þar til hann var rekinn og Arbeloa tók þá við Madrídingum og stýrði út leiktíðina. Joao Pedro, Morgan Rogers og Cole Palmer skoruðu mörk Chelsea en Joshua King og Gonzalo Garcia fyrir Fulham. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Stríðið í Íran leggst sérstaklega þungt á ferðaþjónustu Stríðið í Íran hefur mikil efnahagsleg áhrif, sem leggjast sérstaklega þungt á ferðaþjónustu í landinu. Þótt dregið hafi úr árásum óttast margir að missa lifibrauðið í sögufrægu borginni Yazd. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Breytingarnar óþægilegar því 10. bekkur sé svo mikilvægur Við upphaf skólaárs vita grunnskólakennarar ekki hvort þeir eiga að gefa einkunnir í bókstöfum eða tölustöfum, segir umsjónarkennari. Nemendum finnst breytingin óþægileg. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Grunur um myglu raskar skólastarfi í Hlíðarskóla Grunur um myglu hefur sett skólastarf í Hlíðarskóla á Akureyri úr skorðum. Húsið sem myglan fannst í er innsiglað og hvorki nemendur né starfsfólk fær að fara inn. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkin boða frekari refsiaðgerðir gegn írönskum stjórnvöldum Fjármálaráðherra Bandaríkjanna hefur boðað frekari refsiaðgerðir gegn írönskum stjórnvöldum. Aðgerðunum er ætlað að einangra Íran á alþjóðavettvangi. Þær beinast einkum að ríkjum sem halda áfram viðskiptum við Íran og styðja við efnahag landsins. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Óvissa um hvenær aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram Óvíst er hvenær aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram. Annaðhvort verður það á miðvikudag eða fimmtudag. Sjötta degi aðalmeðferðar lauk í dag þar sem læknar og starfsmenn lögreglu gáfu skýrslur. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti „Snýst fyrst og fremst um hvernig stjórnarhættir FIFA eru“ Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, segir sameiginlega yfirlýsingu sambandsins með knattspyrnusamböndunum á Norðurlöndunum fyrst og fremst snúa að stjórnarháttum innan FIFA. Áætlanir Gianni Infantino hafi komið öllum í opna skjöldu. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Leit stendur enn við Stuðlagil Leit stendur enn að ferðamanni sem féll í Jökulsá á Brú í Stuðlagili eftir hádegi. Lögregla veitir ekki frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Ber hún ábyrgð á dauða barna sinna eða brást bandarískt heilbrigðiskerfi? Ber ung bandarísk móðir ábyrgð á dauða þriggja barna sinna? Er hún haldin geðsjúkdómi sem bandarísku heilbrigðiskerfi yfirsást? Þetta eru spurningar sem almenningur í Bandaríkjunum veltir fyrir sér í dómsmálinu gegn Lindsay Clancy. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður 35 þúsund hafa greitt atkvæði – búið að lengja opnunartíma hjá sýslumanni Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu á von á mörgum kjósendum alveg fram að kjördegi. Hún býst við að kjörsókn utan kjörfundar verði betri en í alþingis- og forsetakosningum 2024. 24. ágúst 2026 kl. 16:56INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Unglingadrykkja „vill stundum fylgja svona hátíðum“ Leggja þarf aukna áherslu á þá verndandi þætti sem sporna gegn áhættuhegðun barna og unglinga að mati forvarnarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Hún segir starf lögreglu á Menningarnótt hafa skipt miklu máli. 24. ágúst 2026 kl. 16:38INNLENDAR FRÉTTIR Eurovision Ekki búið að taka ákvörðun um þátttöku Íslands í Eurovision næsta vor Eurovision hefur „sáralítið verið rætt“ innan stjórnar RÚV að sögn stjórnarformanns. Næsti fundur er í lok september en dagskrá hans liggur ekki fyrir. Líkur eru á að Hollendingar verði ekki með, annað árið í röð. 24. ágúst 2026 kl. 16:09ERLENDAR FRÉTTIR Tollar Trumps Trump vill tvöfalda tolla á kanadísk ökutæki Bandaríkjaforseti hyggst tvöfalda tolla á kanadísk ökutæki. Breytingunum er ætlað að taka gildi á næsta ári. Viðskiptadeilur Kanada og Bandaríkjanna hafa farið stigvaxandi að undanförnu. 24. ágúst 2026 kl. 16:08INNLENDAR FRÉTTIR Sund Opnunartími Sundhallarinnar skertur: „Þetta verkefni hefur stækkað“ Sundhöllin í Reykjavík verður lokuð í nokkrar klukkustundir á dag í vetur til að rýma fyrir skólasundi. Viðgerðir á klefum laugarinnar hafa dregist og bráðabirgðaklefar rúma ekki almenna umferð og skólasund samtímis. 24. ágúst 2026 kl. 15:53MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Los Bomboneros y sus bombasticos spila Tómas R. Þann 5. ágúst kom út plata frá latínbiggbandinu Los Bomboneros y sus bombasticos með tónlist Tómasar R. Einarssonar, gestasöngvarar á plötunni eru GDRN, Mugison og Bógómíl Font. 24. ágúst 2026 kl. 15:21INNLENDAR FRÉTTIR Peningar Vaxtahækkun á „miklu greiðari leið“ í greiðslubyrði eftir vaxtadóminn Greiðslubyrði af 40 milljóna króna óverðtryggðu láni eykst að jafnaði um sjö þúsund krónur á mánuði eftir stýrivaxtahækkun í síðustu viku að sögn fjármálaráðgjafa. Landsbankinn tilkynnti um vaxtahækkun á föstudag, fyrstur stóru viðskiptabankanna. 24. ágúst 2026 kl. 15:19INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vegurinn aftur orðinn holóttur þremur dögum eftir klæðningu Klæðning á vegkafla við Kaldármela á Snæfellsnesi er öll í holum þremur dögum eftir að hún var lögð. Bæjarstjórinn í Snæfellsbæ furðar sig á vinnubrögðunum. Hann á fund með Vegagerðinni á morgun. 24. ágúst 2026 kl. 15:02ERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Skólaganga palestínskra barna í stöðugri hættu Stjórnvöld í Ísrael hafa fyrirskipað að fjöldi palestínskra skóla á hernumda hluta Vesturbakkans verði rifinn. Þau vilja reisa íbúabyggð í staðinn. Nemendur óttast að fá ekki að ljúka námi. 24. ágúst 2026 kl. 15:00INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Blóð úr brotaþola fannst á vettvangi í Reykholtsmálinu Starfsmenn lögreglu og læknar gáfu skýrslur í Reykholtsmálinu í dag. Blóð úr brotaþola fannst á vettvangi. Ekki reyndist mögulegt að rekja vopn sem fundust til ákærðu. 24. ágúst 2026 kl. 14:37ÍÞRÓTTIR Handbolti Egyptar sviku loforð og koma ekki til Íslands fyrir HM í janúar Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar ekki æfingaleiki við Egypta hér á landi í janúar í aðdraganda HM