Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tekinn með 13 kíló af maríjúana

Read Full Article →

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi mann í fimm mánaða fangelsi í síðustu viku fyrir tilraun til fíkniefnasmygls. Rúmlega 13 kíló af marijúana fundust í ferðatösku mannsins þegar hann kom með flugi frá Kaupmannahöfn. Maðurinn játaði sök og sagðist hafa tekið að sér að smygla fíkniefnunum gegn greiðslu. Dómari sagði að við ákvörðun sektar yrði bæði að taka tillit til skýlausrar játningar mannsins og þess að hann hefði reynt að smygla hingað umtalsverðu magni af marijúana. Hann fékk því fimm mánaða skilorðsbundinn dóm. Gæsluvarðhald frá 22. júlí dregst frá refsingunni. Héraðsdómur Reykjaness.RÚV / Ragnar Visage

Share this article