- What: A man attempted to assault a passenger and throw beer on another on a bus.
- Impact: The incident occurred on a public transport vehicle in Reykjavik.
Innlent | mbl | 25.8.2026 | 7:24 Reyndi að kýla farþega og hella bjór yfir annan Strætó. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Ökumaður strætisvagns óskaði eftir aðstoð lögreglunar á Hverfisgötu vegna ógnandi manns um borð í vagninum sem væri víðáttuölvaður og með kjaft og leiðindi. Hann var sagður hafa reynt að kýla einn farþega í vagninum og hella bjór yfir annan. Maðurinn var handtekinn þegar lögreglan kom á vettvang og við öryggisleit fundust meint fíkniefni í smelluláspokum sem hann var með á sér. Hann var vistaður í fangaklefa, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun. Í vandræðum með leigjanda Leigusali bað um aðstoð lögreglu og sagði að leigjandi hans væri til vandræða. Þegar lögreglan kom á vettvang reyndist leigjandinn vera sofandi inni hjá sér og vildi leigusalinn að lögregla myndi aðstoða leigjandann við að leita sér læknisaðstoðar vegna áfengissýki. Lögreglan sinnti ýmsum verkefnum á vaktinni. mbl.is/Karítas Með lögregluna á eftir sér Stutt eftirför á eftir ökumanni sem neitaði að nema staðar að kröfu lögreglu endaði þegar hann stöðvaði loksins við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Hann hafði ekið yfir hámarkshraða og ekið gegn nokkrum rauðum umferðarljósum með lögregluna á eftir sér. Ökumaðurinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöðina skammt frá. Munnvatnssýni ökumannsins gaf jákvæða niðurstöðu fyrir fíkniefnum og svo fór að hann var vistaður í klefa í þágu rannsóknar málsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Á 157 km hraða Lögreglan sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ stöðvaði ökumann eftir að hafa mælt hann í umferðinni á 157 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 80 km/klst. Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum og á yfir höfði sér háa sekt. Lögreglan í Kópavogi og Breiðholti stöðvaði ökumann í umferðinni. Hann er af erlendu bergi brotinn og reyndist vera sviptur ökuréttindum í heimalandi sínu. Þá reyndist munnvatnssýni einnig jákvætt á fíkniefni. Ökumaðurinn var handtekinn en látinn laus að blóðsýnatöku lokinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Enn á nagladekkjum Annar ökumaður var stöðvaður í umferðinni en hann reyndist sviptur ökuréttindum. Þá var hann ennþá á nagladekkjum. Ökumaðurinn á yfir höfði sér sekt. Tilkynnt var um yfirstandandi innbrot í fyrirtæki í Kópavogi. Þjófarnir voru farnir þegar lögregla kom á vettvang. Málið er í rannsókn. Glæfraakstur á skellinöðru Lögreglan á Vínlandsleið fékk tilkynningu um ökumann á skellinöðru að aka mjög óvarlega og glæfralega þar sem hann ók m.a. öfugu megin á götunni. Lögreglan hafði uppi á ökumanninum sem ók sýnilega greitt miðað við aðra umferð, ítrekað yfir á ranga akrein og upp á gangstéttir. Hann á yfir höfði sér sekt vegna aksturslagsins. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lockerbie-réttarhöldum frestað í þriðja sinn Vilja breytingar í forystu FIFA Óvænt björgun fyrir utan Siglufjörð vakti mikla athygli Riðu vígaslóð heim að Bergþórshvoli Banaslys varð í Stuðlagili Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Ísland, landið sem kýs tvisvar til að vera visst um að hafa ekki ákveðið neitt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 Mest lesið Í gær Í vikunni Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Leit haldið áfram þar til maðurinn finnst Öryggisverðir koma í stað bókvarða eftir klukkan fimm „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Banaslys varð í Stuðlagili Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 Skólaliðum hjá borginni sagt upp Eldur kviknaði í rafmagnsstaur við Hólmsá Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » Lockerbie-réttarhöldum frestað í þriðja sinn Vilja breytingar í forystu FIFA Óvænt björgun fyrir utan Siglufjörð vakti mikla athygli Riðu vígaslóð heim að Bergþórshvoli Banaslys varð í Stuðlagili Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Ísland, landið sem kýs tvisvar til að vera visst um að hafa ekki ákveðið neitt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Liðskona Pussy Riot vann fyrir öryggisþjónustuna „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Myndir: Pysjurnar streyma í bæinn Fyrirtæki þurfi að setja „beisli“ á gervigreindina Mest lesið Í gær Í vikunni Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Leit haldið áfram þar til maðurinn finnst Öryggisverðir koma í stað bókvarða eftir klukkan fimm „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Banaslys varð í Stuðlagili Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 Skólaliðum hjá borginni sagt upp Eldur kviknaði í rafmagnsstaur við Hólmsá Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar