Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Maðurinn sem féll í Stuðlagili fannst látinn

Read Full Article →

Karlmaður sem féll i Jökulsá á Brú í Stuðlagili í gærmorgun er látinn. Hann fannst á tíunda tímanum í gærkvöldi. Maðurinn er erlendur ferðamaður á fertugsaldri. Lögregla er búin að hafa samband við aðstandendur mannsins og upplýsa þá um slysið. Maðurinn fannst ekki langt frá staðnum þar sem hann féll í ána. Lögreglu var tilkynnt um að maður hefði fallið í ána klukkan 13:15 í gær. Um hundrað manns tóku þátt í leit að manninum, björgunarsveitir og lögregla. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út. Kristmundur Stefán Einarsson lögreglustjóri segir að maðurinn hafi verið í hópi ferðamanna. Hann vill ekki gefa neitt upp um tildrög slyssins að svo stöddu en þau eru til rannsóknar. „Það er of snemmt að segja hvað gerðist nákvæmlega,“ segir hann.

Share this article