- What: Álfheiður Ágústsdóttir appointed as deputy CEO of Travel Connect
- Impact: Leadership change at Travel Connect under Elkem group
Álfheiður Ágústsdóttir, sem hefur gegnt starfi forstjóra Elkem á Íslandi frá árinu 2020, hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri Travel Connect. Fjármála- og innkaupastarfsemi Travel Connect fellur undir hennar svið, sem og dótturfélög samstæðunnar, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Álfheiður hefur starfað hjá Elkem á Íslandi frá árinu 2006, þar af í fullu starfi frá árinu 2009. Áður en hún tek við starfi forstjóra árið 2020 hafði hún gegnt starfi fjármálastjóra hjá fyrirtækinu. Álfheiður er með B.Sc. próf í viðskiptafræði og M.Sc. í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur reynslu af nefndar- og stjórnarstörfum í íslensku atvinnulífi og situr nú í stjórn Kaldalóns. „Ráðning Álfheiðar er liður í að styrkja stjórnendateymi Travel Connect fyrir næsta vaxtarskeið félagsins.“ Davíð leiðir ytri vöxt Álfheiður tekur við starfi aðstoðarforstjóra af Davíð Harðarsyni sem hefur tekið við sem stjórnarformaður félagsins. Hann mun í því hlutverki leiða ytri vöxt samstæðunnar með áherslu á áframhaldandi alþjóðlega sókn og þróun. Travel Connect samanstendur af sjö ferðaþjónustufyrirtækjum með starfsemi á Íslandi, í Svíþjóð, Skotlandi, Þýskalandi og á Ítalíu. Þau eru Nordic Visitor, Iceland Travel, Terra Nova, Iceland Tours, Iceland Unlimited, Nine Worlds og Senlinmao. Hjá samstæðunni starfa um 350 manns.