Velta jókst í flestum af helstu atvinnugreinum landsins í maí og júní 2026 samanborið við sömu mánuði árið 2025, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar . Velta jókst umfram verðbólgu í um helmingi atvinnugreina. Mest jókst velta í upplýsingatækni, sjávarútvegi og málmframleiðslu, eða um 22-25%. Auk þess var töluverður vöxtur í heildverslun, eða um 13%, en velta heildverslana jókst um 27 milljarða króna, úr 199 milljörðum í 226 milljarða. Aftur á móti var samdráttur í bílasölu og einkennandi greinum ferðaþjónustu. Velta í bílasölu í maí og júní dróst saman um 10%, og fór úr 51 milljarði króna í 57 milljarða króna milli ára. Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu dróst saman um 3% milli ára. Velta byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð jókst um 4% en sú aukning var einkum borin uppi af sérhæfðri byggingarstarfsemi (8%) og mannvirkjagerð (20%). Velta í byggingu húsnæðis og þróun byggingarverkefna var lítið breytt á milli ára. Í fasteignastarfsemi jókst velta um rúmlega 8% sem að miklu leyti mátti rekja til leigu atvinnuhúsnæðis.