Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.8.2026 | 10:30 Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Nýi vegkaflinn. Samgöngubótin styttir hringveginn um tólf kílómetra. Gjaldtaka hefst 1. september en stök ferð á að kosta 1.500 krónur. Ljósmynd/Björn Arnarsson Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Innheimta veggjalda á nýjum vegi yfir Hornafjarðarfljót hefst 1. september nk. Stök ferð kostar 1.500 krónur en kostnaðurinn fer stiglækkandi eftir fjölda ferða í mánuði; getur mest orðið 18.750 kr. á mánuði á ökutæki eða 225.000 krónur á ári. Kostnaðurinn er meiri fyrir þyngri ökutæki. Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri Hornafjarðar ræddi við Morgunblaðið og fagnar samgöngubótinni en segir það skjóta skökku við að stakt gjald fyrir notkun hennar sé þrefalt hærra en fyrirhugað gjald við nýja Ölfusárbrú sem eru 495 krónur. Hann kallar eftir því að stjórnvöld grípi inn í og endurskoði gjaldið. Ekki hefur verið ákveðið endanlega hvert gjaldið verður við Ölfusárbrú að sögn Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra. Hann segist við Morgunblaðið vel skilja áhyggjur Hornfirðinga. Spurður um mismuninn á verðinu segir ráðherrann að framkvæmdirnar séu ekki sambærilegar að öllu leyti. Ávinningurinn af styttingu þjóðvegarins um Hornafjarðarveg sé mun meiri en af nýrri Ölfusárbrú. Þjóðvegurinn sé styttur um tólf kílómetra á Hornafjarðarvegi á sama tíma og þeir sem þurfi að fara hjáleið um Selfoss spari minni tíma, eldsneyti, slit á ökutæki og kílómetragjöld. Hann bendir á að leiðin milli Mýra í Hornafirði og Hafnar styttist líka um allt að 14 kílómetra. Forsenda framkvæmdarinnar Hjalti bæjarstjóri segist þó hafa fengið upplýsingar frá Vegagerðinni um að verðið sé ekki aðeins reiknað út frá tíma- og eldsneytissparnaði heldur einnig áætluðum fjölda ferða yfir nýja vegkaflann. Sveitungar hans gjaldi fyrir fámenni sitt en 3.000 manns búa í Hornafirði. Það þyki honum ekki sanngjarnt þar sem íbúar á Mýrum og í Suðursveit sæki alla sína þjónustu, stjórnsýslu og menntun á Höfn. Vegurinn sé því í raun innansveitarvegur. Næsti skóli í vesturátt sé í Öræfasveit, í um 100 km fjarlægð frá Höfn. Hann segir mikinn ávinning vera af nýja veginum í báðar áttir. Vaxandi atvinnulíf sé í sveitunum í tengslum við ferðaþjónustu. Fólk fari til dæmis til vinnu á Jökulsárlóni frá Höfn sem sé stækkandi vinnustaður. Innviðaráðherrann bendir á að ekki hefði verið ráðist í framkvæmdina eins hratt og raun bar vitni ef ekki hefði verið fyrir innheimtu veggjalda. Þau séu algjör forsenda hennar. Heimild fyrir gjaldtöku í 30 ár Hjalti segist ekki mótmæla gjaldtökunni sem hafi alltaf legið fyrir. Hins vegar hafi verið búist við lægri gjöldum. Samgöngubótin er fyrsta samvinnuverkefni Vegagerðarinnar sem kveðið er á um í þar til gerðum lögum. Verkefnið kostaði um 10 milljarða króna og er unnið með Speli ehf. sem sér um innheimtuna. Heimild er fyrir gjaldtöku í 30 ár en henni er ætlað að fjármagna allt að helming framkvæmdarinnar sem telur alls fjórar tvíbreiðar brýr. Ný Ölfusárbrú heyrir undir sömu lög en nú ert gert ráð fyrir því að endanlegur kostnaður við hana verði um 18 milljarðar króna. Þess má jafnframt geta að lagning Sundabrautar fellur undir sömu lög. Ódýrara að fara gamla veginn „Okkur krossbrá þegar upphæðin var kynnt. Mér sýnist, alveg sama hvernig ég reikna það, það vera ódýrara fyrir fólk að fara gamla veginn. Það er eingöngu tíminn sem sparast. Þú þarft að fara ansi margar ferðir yfir Hornafjörð til þess að þetta borgi sig,“ segir bæjarstjórinn. Ríkisstjórnin hélt sumarfund á Höfn í Hornafirði fyrr í sumar þar sem málið var rætt við bæjarstjórnina. „Þar var þetta eitt af efstu málum á blaði. Okkur fannst þau sýna þessu skilning,“ segir Hjalti og kallar eftir því að stjórnvöld grípi inn í til að hóflegra gjald verði rukkað eða afsláttur fyrir reglulega vegfarendur aukinn. Hann segir nauðsynlegt að jafna út gjaldþátttöku landsmanna í vegaframkvæmdum. „Framkvæmdin fer inn í nýtt innviðafélag sem ætlað er að vera sjálfbært. En einstaka vegaframkvæmdir innan félagsins þurfa ekki að vera sjálfbærar.“ Sveitarfélagið hefur átt í góðu samtali við Vegagerðina að sögn Hjalta en hann segir stofnunina ekki hafa viljað hnika veggjaldinu til. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Villa í viðræðum um Portúgalann Landaði 67 tonnum á Grundarfirði Simon Cowell aftur undir hnífinn sex árum eftir alvarlegt slys Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Kaffi Kjötborg: „Það var fullt hús allan tímann“ Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Kæra Heiðrún Lind – fullyrðing þín er einfaldlega röng Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Búast má við umferðartöfum við gatnamótin Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Reykholtsmálið: Vitnisburðum lækna frestað Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys varð í Stuðlagili Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Öryggisverðir koma í stað bókvarða eftir klukkan fimm Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Leit haldið áfram þar til maðurinn finnst Reyndi að kýla farþega og hella bjór yfir annan Skólaliðum hjá borginni sagt upp Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » Villa í viðræðum um Portúgalann Landaði 67 tonnum á Grundarfirði Simon Cowell aftur undir hnífinn sex árum eftir alvarlegt slys Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Kaffi Kjötborg: „Það var fullt hús allan tímann“ Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Kæra Heiðrún Lind – fullyrðing þín er einfaldlega röng Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Banaslys varð í Stuðlagili Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Liðskona Pussy Riot vann fyrir öryggisþjónustuna Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys varð í Stuðlagili Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Öryggisverðir koma í stað bókvarða eftir klukkan fimm Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Leit haldið áfram þar til maðurinn finnst Reyndi að kýla farþega og hella bjór yfir annan Skólaliðum hjá borginni sagt upp Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar

Share this article