Innlent | Morgunblaðið | 25.8.2026 | 11:00 Skortstefna í orkumálum Þórður Gunnarsson mbl.is/Hallur Már Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Einn sterkasta vísbendingin um hagvaxtarhorfur ríkja til framtíðar er hvernig orkuframleiðslu er háttað. Þau ríki sem framleiða ekki næga orku, í hvaða formi sem hún er, hafa aldrei og munu aldrei hámarka sinn hagvöxt. Sé litið til síðustu sex áratuga hefur virkjun orkuauðlinda reynst Íslandi afskaplega vel. Gangsetning Búrfellsvirkjunar árið 1969 markaði þannig þáttaskil í hagsögu landsins. Ísland trónir á toppi allra ríkja heims þegar litið er á uppsett afl á hvern íbúa. Er þar auðvitað um að ræða enn eina birtingarmynd þeirrar hagsældar sem á Íslandi ríkir. Orkunotkun spáir hagvexti Öðru máli gegnir um Evrópusambandið (ESB). Þar hefur raforkuframleiðsla dregist verulega saman síðustu tvo áratugina. Vart þarf frekari vitna við um hvernig hagvexti hefur verið háttað á tímabilinu: ESB sem heild hefur aðeins vaxið um tæpan þriðjung á tímabilinu. Á sama tíma hefur hagkerfi Íslands vaxið rúmlega tvöfalt meira. Innan ESB er nefnilega keyrð markviss stefna sem snýr að því að draga úr orkuframleiðslu. Nú síðast árið 2023 var samþykkt af framkvæmdastjórn ESB að draga úr orkunotkun um tæp 12% fram til ársins 2030. Samdráttarmarkmið ESB hafa ekki náðst nema að hluta, en afleiðingin er augljós. Hagvöxtur ESB-ríkjanna hefur liðið verulega fyrir ríkjandi skortstefnu í orkumálum. Langstærsta tæknibylting síðustu ára, gervigreindin, er núna á fleygiferð um allan heim. ESB hefur verið legið á hálsi fyrir að velta fyrst og fremst fyrir sér regluverki gervigreindar. Óháð reglusetningu hefur ESB þegar stimplað sig út úr gervigreindarkapphlaupinu með viðhorfi sínu til orkuframleiðslu og -notkunar. Enda er þróun gervigreindarlíkana orkufrek starfsemi. Strengjapólitík ESB Ásamt opinberri stefnu um samdrátt í orkuframleiðslu og -notkun hefur ESB þá stefnu að tengja saman öll aðildarríki á einn raforkumarkað. Eina landið sem stendur eftir í þeim efnum er Kýpur. Nú stendur fyrir dyrum að leggja orkusæstreng til Kýpur sem á að vera alls 1.000 kílómetrar – litlu styttri en raforkustrengurinn sem rætt hefur verið um að leggja mætti frá Íslandi til meginlands Evrópu. Nýlega keypti franskur innviðafjárfestingasjóður meirihluta í Kýpur-verkefninu, sem nýtur þó á sama tíma dyggs stuðnings ýmissa sjóða á vegum ESB. Kostnaðaráætlun verkefnisins hljóðar upp á tæplega 280 milljarða króna. Þrátt fyrir að Kýpverjum sé lofað lægri raforkureikningi með lagningu sæstrengsins er ljóst að þeir sem fjármagna lagningu strengsins munu þurfa eitthvað fyrir sinn snúð. Strengurinn til Kýpur er ekki sá eini sem fjasað er um í Evrópu um þessar mundir. Nýverið hættu Svíar við að leggja nýjan sæstreng til meginlands Evrópu (Konti-Skan Connect) í því markmiði að flytja út raforku. Ástæðan var sú að framkvæmdastjórn ESB krafðist þess að fjórðungur svokallaðs „umframhagnaðar“ af útflutningi raforku Svíþjóðar rynni í uppbyggingarsjóð á vegum ESB sem ætlað er að styðja við uppbyggingu raforkukerfa annarra aðildarríkja. Hvernig sem á málið er litið er ljóst að skortstefna ESB í orkumálum hentar Íslandi alls ekki. Smásöluverð raforku til heimila á Íslandi – þrátt fyrir að hafa leitað nokkuð upp á við á síðustu árum – er vel innan við helmingur þess sem tíðkast í norðvesturhluta Evrópu. Þó að raforkuverð á Íslandi myndi ekki taka kipp um leið ef niðurstaðan 29. ágúst verður sú að aðildarviðræðum við ESB verði haldið áfram er ekki hægt að líta fram hjá því hvað felst í stefnu ESB í orkumálum. Skortstefna sambandsins mun hugsanlega leiða til þess að Ísland þurfi að tengjast með beinum hætti inn á evrópska raforkukerfið. Eða þurfi að gjalda þess að framleiða raforku með hagkvæmum hætti, rétt eins og Svíar horfa nú upp á. Áhrifin á raforkuverð á Íslandi eru í báðum tilfellum einsýn til verulegrar hækkunar. Vöndum valið 29. ágúst. Þórður Gunnarsson er hagfræðingur og sérfræðingur í orkumálum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Buðu í einstakt einkasamkvæmi á Álftanesi Bandaríkjaher óvænt í Moskvu Nóbelsverðlaunahafi flytur erindi í HR Eins og að koma aftur heim Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum eða einhliða ESB-málflutningur? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fyrirtæki þurfi að setja „beisli“ á gervigreindina Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 Tugþúsundir á flótta vegna gróðurelda við Reno Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys varð í Stuðlagili Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Öryggisverðir koma í stað bókvarða eftir klukkan fimm Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Leit haldið áfram þar til maðurinn finnst Reyndi að kýla farþega og hella bjór yfir annan Skólaliðum hjá borginni sagt upp Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Buðu í einstakt einkasamkvæmi á Álftanesi Bandaríkjaher óvænt í Moskvu Nóbelsverðlaunahafi flytur erindi í HR Eins og að koma aftur heim Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum eða einhliða ESB-málflutningur? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB „Galin þróun“: Níu og tíu ára börn komin í meðferð Íranar hræðast ekki refsiaðgerðir Bandaríkjanna Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys varð í Stuðlagili Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Öryggisverðir koma í stað bókvarða eftir klukkan fimm Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Leit haldið áfram þar til maðurinn finnst Reyndi að kýla farþega og hella bjór yfir annan Skólaliðum hjá borginni sagt upp Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar