Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Árásirnar að mestu leyti frá Rússlandi og Kína

  • What: State-sponsored cyberattacks are primarily from Russia and China
  • Impact: Experts discuss the threat of state-backed cyber operations
Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.8.2026 | 13:30 Árásirnar að mestu leyti frá Rússlandi og Kína Siggi Pétursson vöruþróunarstjóri Varist verður meðal þeirra sem taka til máls á morgunfundi Varist og Keystrike um ríkisstuddar netógnir í fyrramálið. Ljósmynd/Varist Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Það sem við ætlum að tala um á morgun eru ríkisstuddar netógnir, það er staðreynd að flestar alvarlegar netárásir í dag eru ríkisstuddar og koma að miklu leyti frá Rússland og Kína,“ segir Siggi Pétursson, vöruþróunarstjóri netöryggisfyrirtækisins Varist, í samtali við mbl.is en fyrirtækið stendur í samstarfi við annað netöryggisfyrirtæki, Keystrike, fyrir morgunfundi á Grand hóteli klukkan 09 til 11 í fyrramálið um ríkisstuddar netógnir og áhrif gervigreindar á netárásir og varnir gegn þeim. Á fundinum fara sérfræðingar yfir hvernig ríkisstuddir netglæpahópar velja skotmörk, hvaða aðferðum þeir beita, hvernig þeir eru skipulagðir og hvernig fyrirtæki geta varist árásum þeirra á tímum gervigreindar. Umfjöllunin byggir á reynslu ræðumanna af því að eiga við slíka hópa hjá CERT-IS, Íslandsbanka, SentinelOne, Gen Digital, Varist og Keystrike. Fjórir frummælendur taka til máls Fjórir ræðumenn halda erindi og taka síðan þátt í pallborðsumræðum sem Jóhanna Guðmundsdóttir frá Keystrike stýrir. Fundurinn er hugsaður sem hagnýtur vettvangur þar sem stjórnendur og sérfræðingar í upplýsingaöryggi fá innsýn í raunveruleg atvik, ekki bara fræðilega umfjöllun. Valdimar Óskarsson framkvæmdastjóri Keystrike mun einnig halda erindi auk Magna Sigurðssonar, forstöðumanns netöryggissveitarinnar CERT-IS, og Sigurðar Stefnissonar, framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar og gagna hjá Íslandsbanka. Siggi, sem er nýfluttur heim eftir dvöl í Bandaríkjunum þar sem hann starfaði hjá netöryggisfyrirtækinu SentinelOne, einu því stærsta í heiminum í þeim geira, segir stjórnvöld í Rússlandi heimila netglæpagengjum að ráðast á fyrirtæki á Vesturlöndum. „Þá er mikið um „ransomware“ [gagnagíslingu] að ræða þar sem gögnum fyrirtækja er læst og peninga krafist til að opna þau á ný og við munum fjalla um það á morgun hvernig þessar hópar haga sér og hvaða aðferðum þeir beita,“ heldur Siggi áfram. Hvað þarf að óttast í túninu heima? Spurður út í þær áhyggjur sem Íslendingar þurfi að hafa af netárásum segir hann þar einkum um tvennt að ræða. „Íslensk fyrirtæki geta lent í þessu, ég þekki ekki söguna hérna á Íslandi mjög vel en CERT-IS mun fjalla meira um hana,“ svarar hann og nefnir dæmi um stjórnanda fyrirtækis í Bandaríkjunum sem nýlega hringdi í hann og sagði frá því að verið væri að ráðast á fyrirtæki hans frá tölvu á Íslandi. „Þá var búið að ráðast inn í tölvu á Íslandi sem svo var notuð til að ráðast á tölvur í Bandaríkjunum. Ég hafði þá samband við CERT-IS til að finna hvaða fyrirtæki á Íslandi væri um að ræða og bað þá að hafa stjórn á þessari vél. Fyrirtæki Íslendinga geta verið notuð sem árásarfyrirtæki með þeirra tölvum,“ segir hann frá. Hitt áhyggjuefnið snúist um að stela gögnum um fólk og nota þau til að ráðast gagnvart viðkomandi, til dæmis með hótunum um að birta viðkvæmar upplýsingar. Þá sé gervigreind oftar en ekki notuð til að útbúa gögn sem hægt er að beina að þeim sem ráðist er á til að blekkja hann til að smella á hlekk sem opnar þrjótunum leið inn í tölvu hans,“ segir Siggi Pétursson hjá Varist að lokum um það sem rætt verður á morgunfundinum í fyrramálið. Hér geta áhugasamir skráð mætingu á fundinn þar sem enn er húsrúm þegar þetta er skrifað. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Minnast goðsagnar í Danmörku Árásirnar að mestu leyti frá Rússlandi og Kína Kaka sem þarf hvorki ofn né krem „Viljum ekki bölvað Nýja-Sjáland“ Viljayfirlýsing um nýtt gagnaver Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Ísland, landið sem kýs tvisvar til að vera visst um að hafa ekki ákveðið neitt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Búast má við umferðartöfum við gatnamótin Árásin í Fagersta: Skoða TikTok-reikning mannsins Íranar hræðast ekki refsiaðgerðir Bandaríkjanna Myndir: Pysjurnar streyma í bæinn Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys varð í Stuðlagili Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Öryggisverðir koma í stað bókvarða eftir klukkan fimm Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » Minnast goðsagnar í Danmörku Árásirnar að mestu leyti frá Rússlandi og Kína Kaka sem þarf hvorki ofn né krem „Viljum ekki bölvað Nýja-Sjáland“ Viljayfirlýsing um nýtt gagnaver Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Ísland, landið sem kýs tvisvar til að vera visst um að hafa ekki ákveðið neitt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 Efnisatriði ferlisins háð trúnaði Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys varð í Stuðlagili Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Öryggisverðir koma í stað bókvarða eftir klukkan fimm Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar

Share this article