Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Metur DV á 500 milljónir í bókunum

Read Full Article →

Hofgarðar ehf., fjárfestingarfélag Helga Magnússonar, hagnaðist um 304 milljónir króna á árinu 2025. Hagnaðurinn dróst saman milli ára en hann nam 637 milljónum króna árið áður. Hreinar rekstrartekjur námu 335 milljónum króna, samanborið við 656 milljónir króna árið áður. Rekstrargjöld námu 26,4 milljónum króna og hækkuðu úr 14,2 milljónum króna. Þar vógu þyngst styrkir upp á 22,7 milljónir króna, samanborið við 12,2 milljónir króna árið áður. Eigið fé nam 4.224 milljónum króna. Félagið greiddi 200 milljónir króna í arð á árinu 2025, tvöfalda fjárhæð frá árinu áður. Í skýrslu stjórnar með ársreikningnum er hins vegar ekki lagt til að greiddur verði arður vegna afkomu ársins 2025. Vörumerkin óbreytt í fimm ár Hofgarðar greiddu Torgi 480 milljónir króna árið 2021 fyrir vörumerki og heimasíður Fréttablaðsins, DV og Hringbrautar. Þetta telst til óefnislegra eigna. Kaupverðið var greitt með skuldajöfnuði, en Hofgarðar höfðu lánað Torgi vegna tapreksturs áranna á undan. Bókfært verð hinna óefnislegu eignar hefur staðið óbreytt í 480 milljónum króna frá kaupárinu. Engar afskriftir hafa verið færðar á árunum 2021–2025, þrátt fyrir að lög um ársreikninga geri ráð fyrir kerfisbundnum afskriftum slíkra eigna. Það sem vekur þó meiri athygli er að engin afskrift fór fram þegar útgáfu Fréttablaðsins var hætt. Eignin er flokkuð undir „Varanlegir rekstrarfjármunir“ í efnahagsreikningi Hofgarða. Óbreytt bókfært verð óefnislegu eignanna þýðir að Helgi metur DV og aðra fjölmiðla sína á 480 milljónir króna. DV © Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag) Að auki kemur fram að Hofgarðar hafi lagt fram 19 milljónir króna í hlutafé inn í Fjölmiðlatorgið, útgáfufélag DV. Hofgarðar beita ekki hlutdeildaraðferð við færslu eignarhlutarins og virðist eignarhluturinn í Fjölmiðlatorgi enn vera bókfærður á nafnverði, þótt taprekstur hafi rýrt verðmæti hans. Samanlagt gerir þetta því 499 milljónir króna. Ójöfnuð rekstrartöp Hofgarða námu 1.672 milljónum króna í árslok og tekjuskattsinneign vegna þeirra er bókfærð að fjárhæð 334 milljónir króna til eignar. Hlutafé félagsins er að fullu í eigu Helga.

Share this article