Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

54 starfsmönnum sagt upp hjá Reykjavíkurborg

  • What: Reykjavíkurborg reorganizes its welfare and education departments
  • Impact: 54 employees will lose their jobs
Read Full Article →

Borgarráð samþykkti í dag tillögu borgarstjóra um umfangsmiklar breytingar á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs og munu ný skipurit taka gildi þann 1. september 2026. Breytingarnar leiða til uppsagna 86 starfsmanna, af þeim fá 32 starfsmenn boð um ný eða breytt störf en 54 starfsmenn munu ekki fá áframhaldandi starf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. Áætlað er að breytingarnar skili um 900 milljóna króna hagræðingu á ársgrundvelli þegar þær hafa að fullu komið til framkvæmda vegna áhrifa af fækkun stöðugilda, breytinga á stjórnskipulagi og lægri húsnæðiskostnaði. „Með þessum breytingum erum við að einfalda skipulag borgarinnar, styrkja faglegt starf og skapa betri umgjörð um þjónustu við íbúa. Markmiðið er að tryggja að fjármunir borgarinnar nýtist sem best í þágu Reykvíkinga. Á sama tíma stöndum við vörð um þjónustuna, sem verður áfram nálægt íbúum, en að baki henni verða öflugri fagteymi, skýrari ábyrgð og styttri boðleiðir. Rekstrarstaða borgarinnar kallar á hagræðingu og því miðurborgarstjóri. verður ekki komist hjá því að hún hafi áhrif á starfsfólk. Við höfum lagt megináherslu á að einfalda stjórnskipulagið og fækka stjórnendastöðugildum í miðlægri stjórnsýslu“, segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.

Share this article