Innlent | mbl | 25.8.2026 | 16:00 Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Tengdar fréttir Kynferðisbrot Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Sendi mynd af kynfærum karlmanns í fullri reisn Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Dæmdur fyrir nauðgun: Lögreglan vopnaðist Fjölgun kynferðisbrota milli ára » Fleiri tengdar fréttir Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Maðurinn var enn fremur dæmdur til að greiða tvær milljónir króna í miskabætur. Dómur héraðsdóms féll 8. júlí en var birtur í dag. Fram kemur að héraðssaksóknari hafi í maí 2025 ákært manninn, Björn Inga Helgason, fyrir nauðgun með því að hafa nauðgað konu í íbúð á Akureyri 13. apríl 2024. Fram kemur í dómnum að Björn Ingi og konan hafi þekkst aðeins og átt í samskiptum á Snapchat. Þau ákváðu að hittast að kvöldi 13. apríl og fara saman í partí. Fram kemur í dómi héraðsdóms að það liggi fyrir að Björn Ingi og konan hafi farið inn á salerni þar sem konan veitti honum munnmök. Það hafi verið með samþykki beggja. Þau fóru síðan heim til konunnar með leigubíl. Varð harkalegur við konuna Fram kemur að Björn Ingi hafi ekki munað neitt eftir það. Hann hafi aðeins munað næst eftir sér þegar hann vaknaði upp á lögreglustöð. Konan kvaðst hafa veitt honum munnmök þegar heim var komið. Til að byrja með hefði það verið með samþykki en svo hefði Björn Ingi orðið harkalegur við hana og hún þá beðið hann að hætta en hann haldið áfram. Konan fór síðan inn á baðherbergi og hringdi í vin sinn sem hafði samband við lögregluna. Hún kom skömmu síðar á vettvang og handtók Björn Inga. Fram kemur í niðurstöðum héraðsdóms að upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna sem komu á vettvang hafi legið fyrir í málinu. Fram kemur að konan hafi augljóslega verið í uppnámi en Björn Ingi, sem var í herbergi hennar, hafi augljóslega verið í annarlegu ástandi og með háreysti. Konan var sýnilega hrædd við Björn Inga og hrædd um að þessi læti kæmu henni í vandræði í húsinu. Konan lýsti því strax að þau hefðu byrjað að stunda kynlíf en Björn Ingi hefði gengið of langt. Hann hefði farið að meiða hana, slegið hana og bitið og rifið mjög fast í hár hennar. Hún hefði margsinnis beðið hann um að hætta en hann hefði ekki gert það. Hún hefði þá farið að gráta en hann talað um að hún væri heit svona grátandi og haldið áfram. Hann hefði meðal annars tekið um hálsinn á henni. Framburður konunnar skýr Héraðsdómur segir að framburður konunnar fyrir dómi hafi verið skýr frá upphafi, án mótsagna og að mestu leyti stöðugur. Frásögn hennar hefði verið einlæg, ýkjulaus og sannfærandi. Hvað varðar framburð Björns Inga þá var hann spurður hjá lögreglu hvort hann kannaðist við að hafa tosað í hárið á konunni. Svaraði hann því að það væri partur af kynlífi en hann hefði ekki dregið hana. „ef þú spyrð einhverja gellu þá er það það fyrsta sem þær vilja í kynlífi, það er rétt,“ er haft eftir honum. Hjá lögreglu lýsti hann því einnig að ef hann hefði slegið konuna þá hefði það alls ekki verið fast. Hún hefði beðið um þetta, annars myndi hann ekki gera það. Smá „sexual tension“ Varðandi að hann hafi bitið hana fast í vörina kvaðst hann aldrei bíta fast í vörina, þá myndi vörin rifna, en augljóslega bíti hann í vörina í kynlífi, allir geri það „það er bara numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi,“ er einnig haft eftir honum. Hann bíti til að gera smá „sexual tension“. Fyrir dómi kvaðst hann hafa verið að tala almennt um þetta í skýrslutöku hjá lögreglu, þ.e. hvernig þetta sé oftast hjá honum, en ekki um hann og konuna. Þá áréttaði hann að hann myndi ekkert eftir atvikum heima hjá henni. Hann neitaði sök og taldi útilokað að hann hefði viðhaft þá háttsemi sem í ákæru greinir, nema það hafi verið með samþykki konunnar. Gat ekki gefið skýringar Héraðsdómur segir að gegn trúverðugum framburði konunnar standi neitun Björns Inga. Hann hefði ekkert munað eftir atvikum á heimili konunnar. Í skýrslu sinni fyrir dómi gat hann ekki gefið skýringar á því af hverju konan væri að bera þetta upp á hann né gefið skýringar á áverkum hennar. Þá kvaðst hann hvorki geta neitað eða játað því að hafa veitt konunni umrædda áverka. „Verður ekki séð að nokkuð haldbært hafi fram komið í málinu sem fer í bága við framburð brotaþola sem hefur góða stoð í gögnum málsins,“ segir í dómi héraðsdóms sem bætir við að ákæruvaldinu hafi tekist að sanna að Björn Ingi hefði gerst sekur um nauðgun. Áður hlotið dóma Þá segir í dómi héraðsdóms að Björn Ingi hafi í maí 2022 hlotið tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir líkamsárás. Árið 2025 hafi hann svo hlotið dóm fyrir eignarspjöll. Var skilorðsdómurinn dæmdur upp og refsing ákveðin 90 daga fangelsi. Nú var refsing hans hins vegar ákveðin tvö og hálft ár. Þá dæmdi héraðsdómur hann til að greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur sem og að greiða fjórar milljónir króna í sakarkostnað. Tengdar fréttir Kynferðisbrot Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Sendi mynd af kynfærum karlmanns í fullri reisn Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Dæmdur fyrir nauðgun: Lögreglan vopnaðist Fjölgun kynferðisbrota milli ára » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skrifar undir hjá Manchester United Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Afmæli Akureyrar fagnað með fjölda viðburða Beina umferðinni um bílastæðið við Baulu Mætti í óvenjulegustu skóm ársins Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum eða einhliða ESB-málflutningur? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Búast má við umferðartöfum við gatnamótin Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Mest lesið Í gær Í vikunni Katrín rýfur þögnina Banaslys varð í Stuðlagili Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » Skrifar undir hjá Manchester United Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Afmæli Akureyrar fagnað með fjölda viðburða Beina umferðinni um bílastæðið við Baulu Mætti í óvenjulegustu skóm ársins Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum eða einhliða ESB-málflutningur? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Banaslys varð í Stuðlagili Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Mest lesið Í gær Í vikunni Katrín rýfur þögnina Banaslys varð í Stuðlagili Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar