Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Málið keyrt í gegn til að koma í veg fyrir umræður

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.8.2026 | 17:45 Málið keyrt í gegn til að koma í veg fyrir umræður Pétur Marteinsson, borgarráðsfulltrúi Samfylkingarinnar, óttast að þekkingin fari úr hverfunum með nýju skipulagi. mbl.is/Ólafur Árdal Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Rekstur Reykjavíkurborgar Umfangsmiklar breytingar hjá borginni Skólaliðum hjá borginni sagt upp Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot » Fleiri tengdar fréttir Pétur Marteinsson, borgarráðsfulltrúi Samfylkingarinnar, segir það slæma hugmynd að færa sérfræðiþekkingu úr hverfunum í miðstýrðar einingar, en samkvæmt nýju skipulagi sem stendur til að innleiða hjá borginni verða fjórar þjónustumiðstöðvar borgarinnar lagðar niður í núverandi mynd. Í stað þeirra verður komið á fót tveimur einingum, annars vegar barna- og fjölskylduþjónustu, ásamt skóla- og frístundaþjónustu, og hins vegar félags- og húsnæðisþjónustu. Pétur var sjálfur í hagræðingarhópi þar sem tillögur um skipulagsbreytingarnar voru ræddar og segir margt gott hafa komið þar fram. Tillögurnar hafi hins vegar þurft meiri yfirferð. Málið hafi verið keyrt í gegn á aukafundi í borgarráði til að koma í veg fyrir umræður í borgarstjórn. „Við einsettum okkur það fyrir þetta kjörtímabil að styðja við góð mál og sambandið hefur að mörgu leyti verið gott í borgarstjórn. En þetta útspil núna, það er boðað til panikkfundar með 24 tíma fyrirvara, aukafundar í borgarráði þar sem borgarráð gat mögulega klárað mál, því borgarráð sinnir störfum borgarstjórnar á meðan borgarstjórn er í fríi. Og það var til að koma í veg fyrir að umræður myndu skapast um þetta mál,“ segir Pétur í samtali við mbl.is . Frétt af mbl.is Umfangsmiklar breytingar hjá borginni Þekkingin fari úr hverfunum Fólk í fagráðum borgarinnar hefði átt að koma að málinu og tillagan hefði orðið betri í meðförum borgarstjórnar. „Það er verið að gera drastískar breytingar á skipulagi velferðar, skóla og frístunda í Reykjavík. Það er verið að færa sérfræðiþekkinguna úr hverfunum yfir í miðstýrt apparat í Borgartúni eða upp á Höfða. Ég óttast, og sagði það nú í hagræðingarhópnum, að þarna værum við að fara svona þvert á það sem er verið að gera almennt í Evrópu í dag. Þetta var gert fyrir 10, 20 árum síðan mjög víða, að hafa farið í svona miðstýringu, en það er verið að dreifa þessu aftur nær fólki.“ Breytingarnar leiða til uppsagna 86 starfsmanna borgarinnar en 32 fá boð um ný eða breytt störf. 54 fá ekki áframhaldandi starf. „Við erum að sjá á eftir fólki sem hefur unnið lengi, okkar sérfræðingum, okkar besta fólki sem hefur unnið inni í hverfunum, hvort sem það eru félagsráðgjafar, sálfræðingar eða talmeinafræðingar eða hvað sem er, sem þekkja hverfin og það er eitthvað sem er mjög erfitt að bæta upp.“ Frétt af mbl.is Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Geti valdið óöryggi Þá segir hann tímasetninguna ekki góða, enda séu skólarnir að hefjast og það sé viðbúið að svo viðamiklar breytingar muni valda þeim sem sem þurfa á þjónustu að halda, kvíða. „Maður getur ímyndað sér að foreldrar sem eru með börn sem eru að glíma við einhvers konar vanda, sem þurfa að leita á þjónustumiðstöðvar verði óörugg. Þetta mun hafa áhrif á 400 starfsmenn og tugi þúsunda íbúa, þannig að mér fannst þetta eitthvað sem hefði þurft að fá meiri umræðu og vanda betur til verka.“ Pétur segist hafa sérstakar áhyggjur af nokkrum hópum, þar á meðal innflytjendum sem hafi fjölgað töluvert og eru nú um 15 prósent Reykvíkinga. „Það er búið að leggja niður mannréttindaskrifstofu, mannréttindaráð og nú er verið að leggja niður alþjóðateymið og maður spyr sig bara hver er stefna borgarinnar í þessum málaflokki?“ Tillaga borgarstjóra var samþykkt á aukafundi borgarráðs í morgun. mbl.is/Ólafur Árdal Óttast að traustið tapist Hann bendir á að inn á þjónustumiðstöðvar hverfanna hafi leitað fólk sem hafi þurft á fjárhagsaðstoð að halda og jafnvel glímt við heimilisleysi og hafi þekkt starfsfólkið og treyst því. „Það var búið að byggja upp eitthvað traust. Þetta óttast ég að tapist og finnst mjög slæmt að þetta hafi ekki fengið umræður í borgarstjórn,“ segir Pétur. Hann vissi þó af að því breytingar af þessu tagi stæðu til. „Ég var búinn að vita af þessu, að það væri stefnt í þessa átt. Ég hef setið nokkuð marga fundi þar sem þetta hefur borið á góma og verið rætt og við höfum fengið fólk til okkar. En síðan gerist þetta, það er boðaður þessi fundur með skömmum fyrirvara. Það hafði ekki komið fyrir hagræðingarhópinn.“ Tengdar fréttir Rekstur Reykjavíkurborgar Umfangsmiklar breytingar hjá borginni Skólaliðum hjá borginni sagt upp Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Málið keyrt í gegn til að koma í veg fyrir umræður Ótti við rússneska kafbáta á Íslandi Ashley Cole hættir störfum Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Ítalskur markvörður í ensku úrvalsdeildina Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Kæra Heiðrún Lind – fullyrðing þín er einfaldlega röng Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ótti við rússneska kafbáta á Íslandi Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Mest lesið Í gær Í vikunni Katrín rýfur þögnina Banaslys varð í Stuðlagili Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Nýjast á mbl.is » Málið keyrt í gegn til að koma í veg fyrir umræður Ótti við rússneska kafbáta á Íslandi Ashley Cole hættir störfum Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Ítalskur markvörður í ensku úrvalsdeildina Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Kæra Heiðrún Lind – fullyrðing þín er einfaldlega röng Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Banaslys varð í Stuðlagili Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg: Sá stærsti 4,1 Búast má við umferðartöfum við gatnamótin „Og þá vandast líka málið fyrir Ísland“ Mest lesið Í gær Í vikunni Katrín rýfur þögnina Banaslys varð í Stuðlagili Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“

Share this article