Ný könnun Gallup sýnir að þorri landsmanna telur ríkisstjórnina hafa staðið sig illa í að stuðla að minni verðbólgu og vöxtum. Af þeim sem tóku afstöðu telja um 87% ríkisstjórnina hafa staðið sig illa í að stuðla að lægri vöxtum og um 85% telja hana hafa staðið sig illa í að stuðla að minni verðbólgu. Í könnun Gallup var annars vegar spurt: Hversu vel eða illa finnst þér ríkisstjórnin standa sig í að stuðla að lægri vöxtum? og hins vegar: Hversu vel eða illa finnst þér ríkisstjórnin standa sig í að stuðla að minni verðbólgu? Þegar allir svarmöguleikar eru teknir með í reikninginn þá er niðurstaðan sú að 2,5% telja ríkisstjórnina hafa staðið sig mjög vel í að stuðla að lægri vöxtum, 8,0% segja hana hafa staðið sig frekar vel og 19,8% svara hvorki né. Aftur á móti telja 49,4% ríkisstjórnina hafa staðið sig mjög illa og 20,4% telja hana hafa staðið sig frekar illa. Niðurstaðan er keimlík í spurningunni um verðbólguna. Alls 2,4% segja ríkisstjórnina hafa staðið sig mjög vel í að stuðla að minni verðbólgu, 9,6% segja hana hafa staðið sig frekar vel og 18,8% svara hvorki né. Alls 49,2% telja ríkisstjórnina hafa staðið sig mjög illa og 20,0% frekar illa. Megn óánægja Kjósendur stjórnarandstöðuflokkanna eru sammála um að ríkisstjórnin hafi staðið sig illa í baráttunni gegn verðbólgunni og í að stuðla að lægri vöxtum. Næstum allir kjósendur Sjálfstæðisflokksins í könnuninni, eða tæp 99% þeirra, telja ríkisstjórnina hafa staðið sig illa í að minnka verðbólgu og lækka vexti. Hlutfallið hjá kjósendum Miðflokksins og Framsóknarflokksins er aðeins lægra. Afstaða kjósenda stjórnarflokkanna til spurninganna tveggja er áhugaverð. Nánar er fjallað málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér . Könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið var gerð dagana 13. til 24. ágúst. Úrtaksstærð var 1.952. Fjöldi svarenda var 742 og þátttökuhlutfallið því 38,3%.