Innlent | mbl | 25.8.2026 | 23:00 | Uppfært 23:21 „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Horft yfir Stuðlagil Klausturselsmegin. Auðdís segir manninn hafa flotið niður ískalda og straumharða jökulána. Hún hljóp meðfram bökkunum og fylgdi manninum eftir þar til hann hvarf henni sjónum. Lýsir Auðdís því hvernig maðurinn hafi flotið fljótt fram hjá grjóteyjunni sem sést í ánni á miðri mynd. Ljósmynd/Landsbjörg Setja bókamerki Upp úr klukkan eitt í gær kom Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir leiðsögumaður með fjögurra manna hóp að Stuðlagili. Hún var með hópinn á efri bökkunum Klausturselsmegin þegar hún heyrði hróp og köll. „Fyrst byrja ég að hugsa: „Oh, einhver TikTok-stjarna er að fara að taka upp eitthvað,“ sem gerist daglega. Svo sé ég mann í ánni og hugsa áfram: „Í alvörunni, eruð þið bara að taka upp eitthvað TikTok-vídeó hérna?““ Það tók leiðsögumanninn hins vegar aðeins örfáar sekúndur að átta sig á því að eitthvað mikið væri að. Frétt af mbl.is Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys „Skil ekki hvers vegna hún kemur ekki upp til að anda“ „Ég sé að manneskjan er með höfuðið og allt í kafi og ég skil ekki hvers vegna hún kemur ekki upp til að anda. Vatnið er ískalt og það er stórhættulegt að vera með hausinn svona lengi í kafi.“ Auðdís hringdi í 112 og hljóp meðfram bökkunum til að reyna að sjá betur hvað væri að gerast, hvort einhver væri að reyna að ná manninum upp úr eða hvort hann kæmist upp að sjálfsdáðum. Komst ekki niður í gilið Í samtali við mbl.is segist Auðdís hafa verið það hátt uppi á bökkunum að hún hafi ekki komist niður í gilið en hún hafi séð manninn reyna að hreyfa sig í ánni. „Fyrst eins og hann væri að reyna að ná andanum og það bara gerist ekki. Allt í einu varð hann svo algjörlega líflaus og flaut bara áfram.“ Straumurinn bar manninn niður ískalda og straumharða jökulána og Auðdís hljóp áfram meðfram bökkunum til þess að halda honum í augsýn. Á meðan var hún í sambandi við Neyðarlínuna og lögregluna. Að lokum hvarf maðurinn henni sjónum. „Ég sé að hann er orðinn alveg líflaus. Hann bara flýtur niður og hverfur mér sjónum. Ég fer aðeins lengra, reyni að sjá eitthvað en sé enga hreyfingu í vatninu. Ég spyr fólk í kring hvort einhver hafi náð honum upp. Þá segir fólk að hann hafi bara sokkið niður og ekkert sést aftur eftir það.“ Auðdís segist ekki vita hvernig maðurinn hafnaði í ánni. „Ég náttúrulega var ekki að spyrja að neinu að því hvað gerðist. Það eina sem ég var að gera var að reyna að fá upplýsingar fyrir björgunarsveitirnar og lögregluna, bara með aðstæður og ástand og svoleiðis. Mér finnst samt, eins og ég heyri hrópin og köllin, að þetta hafi bara verið að gerast, hann hafi verið að falla í ána þegar allir byrja að hrópa og kalla.“ Spurð út í símasamband við Stuðlagil segir Auðdís það hafa verið bætt eftir banaslysið haustið 2024. „Það var ekki gott símasamband þegar það varð. Björgunaraðilar fóru fram á að símasambandið yrði lagað,“ segir hún og bætir við að mastur hafi verið sett upp. „Ég náði strax í gegn í gær og ekkert mál.“ Frétt af mbl.is Leit haldið áfram þar til maðurinn finnst Frétt af mbl.is Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Skilti sem á stendur: „Ef þú hrapar þá deyrðu.“ Auðdís birti færslu á Facebook í kvöld þar sem hún gagnrýnir aðstæður við Stuðlagil og að þar sé innviðum og öryggismálum ábótavant. Hún fer daglega með ferðamenn að gilinu og segir lítið vera til staðar til að koma í veg fyrir að fólk fari sér að voða. „Þetta eru háir klettar. Þetta er djúpt gil og það er ekki búið að byggja neitt. Ekki neina girðingu eða neitt til þess að girða þetta af.“ Grundarmegin hafi verið byggðir útsýnispallar en Klausturselsmegin, þar sem Auðdís var í gær, sé göngustígur og víða hægt að komast alveg fram á háa kletta. „Það eina sem er þarna er skilti sem á stendur: „Ef þú hrapar þá deyrðu.““ Staðan veldur Auðdísi áhyggjum en þegar hún fer með ferðamenn að Stuðlagili eru sumir jafnvel hoppandi upp á eyjar úti í miðri ánni bara til þess að ná hinni fullkomnu ljósmynd. „Þau fara alveg út á „edge“, sama hvað maður varar við. Það skiptir ekkert endilega öllu máli. Það eru 10 ár síðan þetta varð „viral“ og það er bara búið að malbika u.þ.b. tvo þriðju af veginum til þess að komast að þessu gili. Til þess að komast að því Klausturselsmegin ertu bara að keyra einhvern slóða fyrir traktora, sem er aðeins búið að bæta,“ segir Auðdís. Hún leggur áherslu á að gagnrýni hennar beinist ekki að bændum á svæðinu. „Ég veit að þeir eru ekki að fá almennilegan pening til þess að gera hluti þarna. Það stendur alltaf á einhverju.“ „Enginn björgunarhringur, engin lína“ Þegar Auðdís áttaði sig á því hvað var að gerast var fyrsta hugsun hennar að komast sjálf niður að ánni og reyna að bjarga manninum. „Eðlisávísunin sagði: „Ég vil fara og bjarga“.“ Auðdís segir hins vegar ljóst að það hefði verið röng ákvörðun. Straumurinn hafi verið mikill og ekkert við bakkana sem hefði getað hjálpað henni að koma manninum upp úr ánni. „Það er ekkert sem hefði getað hjálpað okkur báðum upp. Enginn björgunarhringur, engin lína. Það er ekkert.“ Auðdís starfaði áður hjá Landsbjörgu og veit að eigið öryggi á alltaf að ganga fyrir. „Þó svo ég hefði farið út í og náð manninum hefði ég aldrei komið honum upp á bakkann ein í þessum straumi. Svo hefði ég byrjað að ofkælast sjálf.“ Frétt af mbl.is Banaslys við Stuðlagil: Með góða mynd af því sem gerðist Annað banaslysið á tveimur árum Banaslysið í gær er annað banaslysið í Stuðlagili á tæpum tveimur árum en í október 2024 lést erlend kona á fertugsaldri eftir að hafa fallið í ána, einnig Klausturselsmegin. Auðdís segir að þrátt fyrir þann fjölda ferðamanna sem sæki Stuðlagil heim standi enn á uppbyggingu og öryggismálum við gilið. „Af hverju þarf þetta að vera svona ömurlegt hérna? Af hverju eru vegirnir svona ömurlegir og af hverju er uppbyggingin þarna, á stærsta ferðamannastaðnum fyrir austan, svona ömurleg?“ Hún segist vera tilbúin að halda áfram að vekja athygli á stöðunni. „Ef ég þarf að vera sú sem er að tuða þá bara er það svoleiðis. Ég skal bara vera sú.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Skilin eftir sex ára hjónaband Mættur aftur til Þýskalands Kaupa framherjann á metfé Vinkonurnar mættu til Védísar Evu Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Kæra Heiðrún Lind – fullyrðing þín er einfaldlega röng Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Íranar hræðast ekki refsiaðgerðir Bandaríkjanna „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Yfirmaður CIA til fundar við ráðamenn í Moskvu Mest lesið Í gær Í vikunni Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Katrín rýfur þögnina Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Nýjast á mbl.is » „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Skilin eftir sex ára hjónaband Mættur aftur til Þýskalands Kaupa framherjann á metfé Vinkonurnar mættu til Védísar Evu Umræðan Nei-hópurinn í brattri brekku Kæra Heiðrún Lind – fullyrðing þín er einfaldlega röng Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Mest lesið Í gær Í vikunni Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar „Þessar ásakanir hafa legið þungt á starfsfólkinu“ Féll í Jökulsá við Stuðlagil: Þyrlan kölluð út Myndir: Leit stendur enn yfir í ánni Andri fékk rúmar 9 milljónir á sinn reikning „Jón og Gunna“ farin að geta brotist inn Ferðamaður með hníf að tína blóm Réðst á og ók á starfsmann Skólaliðum hjá borginni sagt upp Kallar eftir endurskoðun veggjalda Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Katrín rýfur þögnina Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“