Innlent | Morgunblaðið | 26.8.2026 | 6:00 Tiltrú á hagstjórnina hverfandi Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra. Samsett mynd/ Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Bensínskatturinn til skoðunar Mjúki tónninn fór vel í markaðinn Tónninn talsvert mildari en áður Indó hækkar vexti Svona getur vaxtahækkunin komið við húsnæðislánin » Fleiri tengdar fréttir Ríkisstjórnin fær afgerandi falleinkunn hjá þorra landsmanna, þegar þeir eru spurðir um hvernig henni hafi gengið í tveimur brýnustu viðfangsefnum efnahagsmála. Sjö af hverjum tíu telja hana standa sig illa við að stuðla að lægri vöxtum og 69% segja hana standa sig illa við að ná niður verðbólgu. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar, sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið , en það lét Morgunblaðinu gögnin góðfúslega í té. Þegar aðeins er litið til þeirra, sem tóku skýra afstöðu með og móti, sígur enn á ógæfuhliðina hjá stjórnarliðinu. Í þeim hópi segja 87% ríkisstjórnina standa sig illa í vaxtamálum og 85% illa í baráttunni við verðbólguna. Aðeins 13% og 15% gefa stjórninni góða einkunn. Óánægjan nær langt inn í raðir stuðningsmanna stjórnarflokkanna, sem virðast margir hafa misst trú á „sínu fólki“. Samfylkingarfólk er ríkisstjórninni hliðhollast, en þó telur aðeins um þriðjungur þess fólks ríkisstjórnina standa sig vel. 38% segja hvorki né, en fjórðungurinn að hún standi sig beinlínis illa. Aðeins um sjötti hver Viðreisnarmaður segir stjórnina standa sig vel í að stuðla að lægri verðbólgu og vöxtum, en meira en tvöfalt fleiri eða 37% segja hana standa sig illa í hvoru tveggja. Meðal kjósenda Flokks fólksins er dómurinn enn harðari: tæplega 60% þeirra segir ríkisstjórnina standa sig illa í báðum málum. Finna má mun á milli þjóðfélagshópa. Háskólamenntaðir sýna ríkisstjórninni þannig meira umburðarlyndi en þeir sem hafa minni menntun, ekki þó með velþóknun heldur með svarinu „hvorki né“. Búseta skiptir greinilega máli. Íbúar Reykjavíkur eru síður neikvæðir en fólk utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem 76% finnst stjórninni takast illa upp. Sé horft til aldurs hafa yngri hóparnir minnsta trú á hagstjórn ríkisstjórnarinnar, einkum fólk á aldrinum 30–39 ára. Freistandi er að rekja niðurstöðurnar beint til síðustu vaxtaákvörðunar fyrir viku, þegar Seðlabankinn hækkaði meginvexti í 8%, þriðju hækkun ársins, og verðbólga mældist 5,3% í júlí. Sú vaxtaákvörðun kom um miðbik könnunartímans, svo hún hefur ráðið einhverju, en ekki öllu. Könnun Gallup var gerð 13.–24. ágúst. Í úrtakinu voru 1.952 manns, 747 svöruðu og svarhlutfallið var 38,3%, en niðurstöður vegnar. Nánari tölur úr könnuninni má finna í Viðskiptablaðinu í dag. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Bensínskatturinn til skoðunar Mjúki tónninn fór vel í markaðinn Tónninn talsvert mildari en áður Indó hækkar vexti Svona getur vaxtahækkunin komið við húsnæðislánin » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skúrir á víð og dreif en bætir í úrkomu í kvöld Tiltrú á hagstjórnina hverfandi Meðalaldur bænda fer heldur lækkandi Varanlegar undanþágur ólíklega í boði Högni seldi lúxusíbúðina á Hafnartorgi Umræðan Vildum við missa af EES? Lagaprófessorar HR mæta til leiks Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Uppsagnir skólaliða ekki frá meirihlutanum komnar Neikvæð áhrif á líðan fanga Laun á Íslandi ein þau hæstu í Evrópu Varanlegar undanþágur ólíklega í boði Mest lesið Í gær Í vikunni „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Uppsagnir skólaliða ekki frá meirihlutanum komnar Katrín rýfur þögnina Rafmagn komið á í Grindavík og nágrenni Kominn tími til að endurvekja lífið í Grindavík Fjallgöngurnar sjálfsagður hluti af lífinu Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Ótti við rússneska kafbáta á Íslandi Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » Skúrir á víð og dreif en bætir í úrkomu í kvöld Tiltrú á hagstjórnina hverfandi Meðalaldur bænda fer heldur lækkandi Varanlegar undanþágur ólíklega í boði Högni seldi lúxusíbúðina á Hafnartorgi Umræðan Vildum við missa af EES? Lagaprófessorar HR mæta til leiks Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tiltrú á hagstjórnina hverfandi Varanlegar undanþágur ólíklega í boði Íranar hræðast ekki refsiaðgerðir Bandaríkjanna Yfirmaður CIA til fundar við ráðamenn í Moskvu Mest lesið Í gær Í vikunni „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Uppsagnir skólaliða ekki frá meirihlutanum komnar Katrín rýfur þögnina Rafmagn komið á í Grindavík og nágrenni Kominn tími til að endurvekja lífið í Grindavík Fjallgöngurnar sjálfsagður hluti af lífinu Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Ótti við rússneska kafbáta á Íslandi Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar