Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ís­lands­hótel töpuðu milljarði á fyrri árs­helmingi

Read Full Article →

Íslandshótel, stærsta hótelkeðja landsins, tapaði einum milljarði króna á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við 1,1 milljarðs króna tap á sama tímabili í fyrra. Félagið birti árshlutauppgjör í dag. Velta Íslandshótela jókst um 2,2% milli ára og nam 6,6 milljörðum króna. Rekstrargjöld jukust um 2,8% og námu tæplega 6 milljörðum króna. Laun og tengd gjöld námu tæplega 3,9 milljörðum króna og jukust um 2,9% frá sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) dróst saman um 2,9% milli ára og nam 669 milljónum króna. Rekstrarafkoma (EBIT) var neikvæð um 363 milljónir króna á fyrri árshelmingi 2026, samanborið við 263 milljóna rekstrartap á sama tímabili í fyrra. Eignir Íslandshótela námu 65,6 milljörðum króna í lok júní 2026 og eigið fé var um 24,8 milljarðar króna. Í afkomutilkynningu Íslandshótela er vakin athygli á því að mikil breyting hafi orðið á sjóðstreymi milli ára. Handbært fé frá rekstri nam 704 milljónum á fyrri árshelmingi, en til samanburðar var neikvætt sjóðstreymi frá rekstri um 195 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Sjá einnig Tvö hótel í Reykjavík fá ný nöfn „Það er margt jákvætt í rekstri félagsins á fyrri hluta ársins. Tekjur aukast á milli ára og sjóðstreymi frá rekstri batnar verulega. Þá hafa fjármagnsliðir þróast í rétta átt og vaxtagreiðslur lækkað töluvert. Á sama tíma hefur okkur tekist að halda vel utan um kostnað þrátt fyrir áframhaldandi verðbólgu og kjarasamningsbundnar launahækkanir,“ segir Davíð Torfi Ólafsson , forstjóri Íslandshótela. „Framundan eru síðan mikilvæg tímamót þegar Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Askja bætast við reksturinn 1. september. Með þeim munum við reka 19 hótel um land allt með samtals um 2.400 herbergjum og styrkja þannig stöðu Íslandshótela enn frekar.“

Share this article