Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Meta greiðir jafnvirði 2.000 milljarða króna vegna málaferla

  • What: Meta agrees to pay $2 billion in settlement over child safety concerns
  • Impact: U.S. states and Meta reach agreement over alleged harm to children on social media platforms
Read Full Article →

Samfélagsmiðlarisinn Meta hefur fallist á að greiða því sem nemur 2.000 milljörðum íslenskra króna til bandarískra ríkja sem höfðuðu mál gegn fyrirtækinu . Sátt náðist í dag. 29 ríki höfðuðu málið og sökuðu Meta um að gera börn vísvitandi háð samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. „Raunverulegar breytingar“ Meta hefur jafnframt samþykkt að ráðast í umfangsmiklar breytingar með það að markmiði að draga úr hættu á skaða af völdum samfélagsmiðla sinna. Rob Ronta, ríkissaksóknari í Kaliforníu, sagði að það myndi gerast innan nokkurra mánaða. Hann sagði niðurstöðuna endurspegla raunverulegar breytingar, gagnsæi og raunverulegar varnir fyrir börn. Samkvæmt gögnum málsins viðurkennir Meta hins vegar ekki ábyrgð á neinum misgjörðum. Fyrirtækið hefur alfarið neitað ásökunum stefnenda.

Share this article