Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sögð hafa fengið boð um lakari kjör

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.8.2026 | 17:20 Sögð hafa fengið boð um lakari kjör Þetta segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis. mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Tengdar fréttir Rekstur Reykjavíkurborgar „Það er meira fram undan“ Uppsagnir skólaliða ekki frá meirihlutanum komnar „Það er gríðarlega sterkt ákall um þetta“ Málið keyrt í gegn til að koma í veg fyrir umræður Frekari umbóta þörf í borginni » Fleiri tengdar fréttir Rúmlega helmingur þeirra sem var sagt upp í hópuppsögn hjá Reykjavíkurborg í gær eru félagsmenn í Sameyki. Fimmtán félagsmenn stéttarfélagsins fengu boð um nýtt eða annað starf. Formaður Sameykis segir að þeim sem fengu boð um nýtt starf hafi verið boðin lakari launakjör. Þá hafi starfsmennirnir fengið skamman tíma til að ákveða hvort þeir hyggist þiggja nýtt starf. Sumir fengu til hádegis á morgun og aðrir til síðdegis á morgun. Borgarráð samþykkti í gær tillögu borgarstjóra um umfangsmiklar breytingar á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs. Breytingarnar leiddu til uppsagna 86 starfsmanna. 47 þeirra eru félagsmenn í Sameyki. Alls fengu 32 boð um ný eða breytt störf, þar af eru 15 félagsmenn í Sameyki. „Tilfinningin okkar hjá Sameyki er sú að það er mikið af fólki afskaplega óöruggt í starfi. Því líður illa í vinnunni. Það er afskaplega hæft fólk sem starfar innan veggja Reykjavíkurborgar sem er farið að hugsa sig til hreyfings,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is „Það er meira fram undan“ Munnleg loforð um laun Alls starfa um 11 þúsund manns hjá Reykjavíkurborg og þar af eru sex þúsund félagsmenn í Sameyki. Oddvitar meirihlutaflokkanna hafa ekki útilokað svipaðar aðgerðir á öðrum sviðum borgarinnar. Eins og áður segir fengu starfsmenn boð um lakari launakjör. Að sögn Kára fengu starfsmenn munnleg loforð um laun á fundi þar sem þeim var tilkynnt uppsögn en um leið boð um nýtt og breytt starf. Starfsmenn hafi fengið drög að nýrri starfslýsingu skriflega. Frétt af mbl.is Umfangsmiklar breytingar hjá borginni Þungt hljóð Meðal breytinga sem meirihlutinn samþykkti var að færa verkefni þjónustu- og frístundamiðstöðva inn í nýtt skipulag sem byggir á faglegri sérhæfingu og samræmdri þjónustu þvert á borgina í stað landfræðilegrar hverfaskiptingar. Þessar breytingar munu hafa áhrif á þjónustumiðstöðvar borgarinnar sem eru fjórar. Með breytingunum verða þær lagðar niður og verkefni þeirra færð undir nýtt skipulag skóla- og frístundasviðs. Kári sótti í morgun upplýsingafund starfsmanna þjónustumiðstöðvarinnar í Suðurmiðstöð þar sem starfsfólk hafði tök á að spyrja oddvita meirihlutaflokkanna út í breytingarnar. Hann segir að oddvitarnir hafi illa svarað sumum spurningum starfsmannanna og að mikil óvissa væri á meðal starfsfólks um framhaldið og hvernig starfseminni verði háttað. Þungt hljóð hafi verið á fundinum. Frétt af mbl.is „Það er gríðarlega sterkt ákall um þetta“ Tengdar fréttir Rekstur Reykjavíkurborgar „Það er meira fram undan“ Uppsagnir skólaliða ekki frá meirihlutanum komnar „Það er gríðarlega sterkt ákall um þetta“ Málið keyrt í gegn til að koma í veg fyrir umræður Frekari umbóta þörf í borginni » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hátíð á Seltjarnarnesi á laugardag Sögð hafa fengið boð um lakari kjör Frábær fyrsti Evrópuleikur FH UEFA hættir við sniðgöngu gegn FIFA „Þetta er hjarta Egilsstaða“ Umræðan Vildum við missa af EES? Efnahagslögsaga þjóðarinnar og aðild að ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meðalaldur bænda fer heldur lækkandi Neikvæð áhrif á líðan fanga Ótti við rússneska kafbáta á Íslandi Yfirmaður CIA hitti ekki Pútín Mest lesið Í gær Í vikunni „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Litið á mig sem dópista“ Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Uppsagnir skólaliða ekki frá meirihlutanum komnar Varað við svikapóstum: Merktir „dómslögreglu“ Ákærður 11 árum eftir brot gegn sambýliskonu Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » Hátíð á Seltjarnarnesi á laugardag Sögð hafa fengið boð um lakari kjör Frábær fyrsti Evrópuleikur FH UEFA hættir við sniðgöngu gegn FIFA „Þetta er hjarta Egilsstaða“ Umræðan Vildum við missa af EES? Efnahagslögsaga þjóðarinnar og aðild að ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ökumaður „með allt í skrúfunni" Yfirmaður CIA hitti ekki Pútín Tiltrú á hagstjórnina hverfandi Meðalaldur bænda fer heldur lækkandi Mest lesið Í gær Í vikunni „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Litið á mig sem dópista“ Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Uppsagnir skólaliða ekki frá meirihlutanum komnar Varað við svikapóstum: Merktir „dómslögreglu“ Ákærður 11 árum eftir brot gegn sambýliskonu Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar

Share this article