Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hagnaður Sýnar jókst um 39%

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 26.8.2026 | 18:05 Hagnaður Sýnar jókst um 39% Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, segir að fyrri árshelmingur ársins staðfesti áframhaldandi jákvæðan viðsnúning í rekstri félagsins. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Sýn hf. skilaði 995 milljóna króna hagnaði fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, að frádregnum leigugreiðslum (EBITDAaL), á öðrum ársfjórðungi ársins. EBITDAaL jókst um 39% frá sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Frétt af mbl.is Viðræðum Sýnar og Símans lokið án samnings Tekjur jukust lítillega Tekjur Sýnar námu 5.559 milljónum króna og jukust um 2,8% milli ára. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu nam tekjuaukningin 5,5%. Tekjur af fjölmiðlun jukust um 12,3%, auglýsingasala um 9,1%, farsímatekjur um 7% og internettekjur um 2,1%. Heildarrekstrarkostnaður lækkaði um 2,3% milli ára, þrátt fyrir 93 milljóna króna kostnaðarauka vegna breytts rekstrarfyrirkomulags á Sendafélaginu. Laun og launatengd gjöld lækkuðu um 3,1% og annar rekstrarkostnaður um 8,4%. Fjárfestingar námu 691 milljón króna á fjórðungnum og EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum nam 305 milljónum króna, samanborið við 92 milljónir á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Handbært fé frá rekstri nam 871 milljón króna, samanborið við 481 milljón á sama tímabili í fyrra. Frétt af mbl.is Afkoma Sýnar umfram áætlanir á fyrsta fjórðungi EBITDAaL jókst um 42% á fyrri árshelmingi Haft er eftir Herdísi Dröfn Fjeldsted, forstjóra Sýnar, í tilkynningunni að fyrri árshelmingur ársins staðfesti áframhaldandi jákvæðan viðsnúning í rekstri félagsins. „EBITDAaL jókst um 42% á milli ára og nam 1.837 m.kr. Lykilmælikvarði félagsins, EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum, nam 310 m.kr. samanborið við 192 m.kr. á sama tímabili í fyrra, þrátt fyrir umtalsvert meiri fjárfestingar í sýningarréttum.“ Tekjur, leiðréttar fyrir áhrifum af Sendafélaginu, jukust um 6% á fyrri árshelmingi. Fjölmiðlastarfsemin óx um 13% milli ára, aðallega vegna Enska boltans og fjölgunar sjónvarpsáskrifta. Haft er eftir Herdísi að afskriftir sýningarrétta setji mark sitt á afkomu eftir skatta og skýri að tap annars ársfjórðungs hafi aukist milli ára. Tap fyrri árshelmings dróst hins vegar saman frá sama tíma í fyrra. Stöðugildi hjá félaginu voru 367 í lok tímabilsins, samanborið við 414 fyrir ári. Launakostnaður lækkaði um 4,6% milli ára og hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga hafa lækkað um rúman milljarð frá áramótum. Miðlarnir verða áfram hjá Sýn Samningaviðræðum við Ása hf. um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar lauk í ágúst án þess að endanlegur kaupsamningur væri undirritaður. Vef- og útvarpsmiðlarnir verða því áfram hluti af rekstri Sýnar. Í tilkynningunni segir að um sé að ræða öflugar einingar í góðum rekstri sem búi yfir miklum möguleikum til áframhaldandi vaxtar og verðmætasköpunar. Þær muni því áfram styðja við kjarnastarfsemi félagsins. Þá segir að niðurstaðan hafi engin áhrif á útgefna afkomuspá félagsins fyrir árið 2026. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Pólitískir jarðskjálftar í lykilríkjum ESB Sigurður Már Jónsson Heimsendaspár og gervigreind Fleira áhugavert „Það er gríðarlega sterkt ákall um þetta“ Neikvæð áhrif á líðan fanga Ótti við rússneska kafbáta á Íslandi „Það er meira fram undan“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Endaði á að moka ofan í holuna Stracta-hótelin á Hellu til sölu Guðmundur Fertram í nýju hlutverki Brynjar leiðir vöxt og viðskiptaþróun hjá Corus Rótgróin hótel fá ný nöfn Forstjóri Elkem Ísland tekur við nýju starfi Heildartekjur Nova klúbbsins jukust um 22% Rekstrarhagnaður Reita umfram áætlanir Knútur Steinn ráðinn framkvæmdastjóri BMW á Íslandi Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Rótgróin hótel fá ný nöfn Forstjóri Elkem Ísland tekur við nýju starfi Knútur Steinn ráðinn framkvæmdastjóri BMW á Íslandi Rekstrarhagnaður Reita umfram áætlanir Krefjast gjaldþrotaskipta á búi Jóns Einars Halda áfram uppbyggingu í Þjórsárdal Efnisatriði ferlisins háð trúnaði Nóa-Siríusi skipt upp eftir eigendaskiptin Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ Nóa-Siríusi skipt upp eftir eigendaskiptin Rótgróin hótel fá ný nöfn Endaði á að moka ofan í holuna Breytingar hjá Símanum Óskiljanlegt rof á milli launafólks og æðstu toppa Ætla að þrefalda veltuna á 5 árum Stracta-hótelin á Hellu til sölu Halda áfram uppbyggingu í Þjórsárdal „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Pistlar » Sigurður Már Jónsson Pólitískir jarðskjálftar í lykilríkjum ESB Sigurður Már Jónsson Heimsendaspár og gervigreind Fleira áhugavert Tiltrú á hagstjórnina hverfandi Varað við svikapóstum: Merktir „dómslögreglu“ „Það er meira fram undan“ Varanlegar undanþágur ólíklega í boði Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Endaði á að moka ofan í holuna Stracta-hótelin á Hellu til sölu Guðmundur Fertram í nýju hlutverki Brynjar leiðir vöxt og viðskiptaþróun hjá Corus Rótgróin hótel fá ný nöfn Forstjóri Elkem Ísland tekur við nýju starfi Heildartekjur Nova klúbbsins jukust um 22% Rekstrarhagnaður Reita umfram áætlanir Knútur Steinn ráðinn framkvæmdastjóri BMW á Íslandi Íbúð til sölu á 10 milljónir dollara í Reykjavík Rótgróin hótel fá ný nöfn Forstjóri Elkem Ísland tekur við nýju starfi Knútur Steinn ráðinn framkvæmdastjóri BMW á Íslandi Rekstrarhagnaður Reita umfram áætlanir Krefjast gjaldþrotaskipta á búi Jóns Einars Halda áfram uppbyggingu í Þjórsárdal Efnisatriði ferlisins háð trúnaði Nóa-Siríusi skipt upp eftir eigendaskiptin Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ Nóa-Siríusi skipt upp eftir eigendaskiptin Rótgróin hótel fá ný nöfn Endaði á að moka ofan í holuna Breytingar hjá Símanum Óskiljanlegt rof á milli launafólks og æðstu toppa Ætla að þrefalda veltuna á 5 árum Stracta-hótelin á Hellu til sölu Halda áfram uppbyggingu í Þjórsárdal „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig

Share this article