Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Við leitum lausna og göngum til samninga“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.8.2026 | 19:15 „Við leitum lausna og göngum til samninga“ „Við leitum lausna og göngum til samninga,“ sagði forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Meðalaldur bænda fer heldur lækkandi Varanlegar undanþágur ólíklega í boði » Fleiri tengdar fréttir Það verður ófrávíkjanleg krafa að tryggja hagsmuni þjóðarinnar sem eiganda fisksins í landinu komi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Þá verður það forgangsmál að „tryggja að ásættanleg niðurstaða náist fyrir íslenskan landbúnað“ í hugsanlegum viðræðum. Þetta kom fram í ávarpi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á hlustunarfundi í Austurbæjarbíói fyrir skemmstu. Þar ávarpaði hún þjóðina sem mun ganga að kjörborðinu á laugardag og kjósa um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við ESB. Kristrún fór vítt í ræðu sinni og sagði frá áhyggjum þeirra sem sóttu hlustunarfundi hennar um landið. Nefndi hún meðal annars frænda sinn sem vildi vita hvort hún gæti staðið við orð sín um að hér á landi gæti þrifist blómlegur landbúnaður með aðild að ESB. „Já, svarið er já. Því ég heyri og skil þessar áhyggjur og ég mun gera það að algjöru forgangsatriði í samningaviðræðum við Evrópusambandið, ef til þeirra kemur, að tryggja að ásættanleg niðurstaða náist fyrir íslenskan landbúnað. Það skiptir mig persónulega máli og það skiptir máli fyrir Ísland allt,“ sagði Kristrún. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mætti á fundinn og það gerði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, einnig. mbl.is/Eggert Jóhannesson Spyr hver tækifærin séu Sagði hún að Ísland væri ekki á þeim stað sem það er í dag ef það hefði ekki verið fyrir fyrri kynslóðir. „Við leitum lausna og göngum til samninga. Enda höfum við gert góða samninga í gegnum tíðina til að tryggja hagsmuni Íslands. Þess vegna verðum við að spyrja okkur: Hver eru tækifærin sem við stöndum frammi fyrir núna?“ Söngkonan Bríet tróð upp. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þarf kjark og vilja Kristrún sagði að hvert sem hún kæmi hefði sama spurningin komið upp: Hver væru tækifærin sem gætu falist í aðild Íslands að ESB fyrir efnahag venjulegs fólks og minni fyrirtækja? Fólk vildi vita hvort vextir myndu lækka og samkeppnin aukast. „Getur verið að besta leiðin fyrir Ísland til að auka framleiðni og hagvöxt sé einmitt sú að dýpka þetta viðskiptasamband sem við eigum við eina stærstu efnahagsblokk í heiminum?“ spurði Kristrún. „Og ég tel að svörin við öllum þessum spurningum séu skýr: já, við getum hrist upp í kerfinu, opnað atvinnulífið, aukið samkeppni. Já, við getum stuðlað að lægra verði, lægri vöxtum og meiri stöðugleika. Já, við getum það en til þess þarf kjark og vilja til að ganga saman til samninga fyrir Ísland,“ bætti hún við. Ræddi hún sömuleiðis fullveldi Íslands sem hún sagði ekki vera safngrip sem væri geymdur í skáp á meðan við einangruðum okkur frá umheiminum. Vitnaði hún í kjölfarið til orða Sveins Björnssonar, fyrsta forseta Íslands. „[...] „þótt fullveðja maður feli öðrum umboð til einhvers, þá heldur hann áfram að vera fullveðja“. Og það sama gildir um fullvalda þjóð sem ákveður sjálf að undirgangast alþjóðlegar skuldbindingar eða gera það ekki. Þó að við göngumst undir skuldbindingar til að bæta eigin hag, þá breytir slíkt engu um það að Ísland verður áfram frjálst og fullvalda ríki,“ sagði hún. Rétt er að taka fram að fundurinn var í beinu streymi en tæknilegir örðugleikar komu í veg fyrir að útsendingi birtist á mbl.is. mbl.is/Eggert Jóhannesson Tengdar fréttir Ísland og ESB Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Meðalaldur bænda fer heldur lækkandi Varanlegar undanþágur ólíklega í boði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mikilvægur í sigri í fyrsta leik Stórsigur Breiðabliks í Evrópubikarnum „Við leitum lausna og göngum til samninga“ Argentínski landsliðsmaðurinn til Chelsea? Leiðir Valgeirs og Camillu Rutar skilja Umræðan Vildum við missa af EES? Efnahagslögsaga þjóðarinnar og aðild að ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kadis ýjar að aðlögun við aðild Ótti við rússneska kafbáta á Íslandi Ökumaður „með allt í skrúfunni" „Það er meira fram undan“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Litið á mig sem dópista“ Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Kadis ýjar að aðlögun við aðild Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Uppsagnir skólaliða ekki frá meirihlutanum komnar Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » Mikilvægur í sigri í fyrsta leik Stórsigur Breiðabliks í Evrópubikarnum „Við leitum lausna og göngum til samninga“ Argentínski landsliðsmaðurinn til Chelsea? Leiðir Valgeirs og Camillu Rutar skilja Umræðan Vildum við missa af EES? Efnahagslögsaga þjóðarinnar og aðild að ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varað við svikapóstum: Merktir „dómslögreglu“ Endaði á að moka ofan í holuna „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Kadis ýjar að aðlögun við aðild Mest lesið Í gær Í vikunni „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Litið á mig sem dópista“ Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Kadis ýjar að aðlögun við aðild Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Uppsagnir skólaliða ekki frá meirihlutanum komnar Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar

Share this article