Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Knútur frá deCODE til Syndis

Read Full Article →

Netöryggisfyrirtækið Syndis hefur ráðið Knút Otterstedt sem ráðgjafa í upplýsingaöryggi hjá fyrirtækinu. Helstu verkefni Knúts hjá Syndis munu snúa að almennri ráðgjöf í upplýsingaöryggi til fyrirtækja. Knútur hefur mikla reynslu af netöryggismálum en hann var öryggisstjóri hjá deCODE síðustu 13 ár. „Það er spennandi og koma til Syndis eftir góðan og árangursríkan tíma hjá deCODE þar sem ég vann við að byggja upp mjög hátt öryggisstig hjá fyrirtækinu. deCODE er með stærsta tölvuumhverfi á Íslandi og hýsir gríðarlega viðkvæm gögn, svo öryggi var ávallt í forgrunni,“ segir Knútur. Sjá einnig Syndis kaupir sænskt netöryggis­fyrir­tæki Hann er með M.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Ráðning Knúts er skýrt skref í þá átt að styrkja stöðu Syndis enn frekar í fararbroddi netöryggis. Reynslan sem hann kemur með úr krefjandi og alþjóðlegu umhverfi fellur fullkomlega að sýn fyrirtækisins,“ segir Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis.

Share this article