Innlent | Morgunblaðið | 26.8.2026 | 23:30 Fimm skýringar á mikilli þátttöku Sumrinu er ekki lokið og landsmenn enn á faraldsfæti. Það kann að skýra, að vissu marki, mikinn fjölda utankjörfundaratkvæða. Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Rapparinn segir nei Yngsti hópurinn hallast að nei Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður „Við leitum lausna og göngum til samninga“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina » Fleiri tengdar fréttir Landsmenn hafa verið einkar duglegir að greiða atkvæði utan kjörfundar um hvort hefja skuli að nýju aðildarviðræður við ESB. Um hádegisbil í gær höfðu 36.946 manns þegar greitt atkvæði á landsvísu og bendir margt til þess að nýtt met verði slegið. Leita þarf aftur til ársins 2020 til að finna sambærilegar tölur en þá voru haldnar forsetakosningar í lok júní þar sem Guðni Th. Jóhannesson sigraði Guðmund Franklín Jónsson með miklum yfirburðum og var þátttaka í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar óvenjumikil í það skiptið. Til samanburðar höfðu 24.407 atkvæði verið greidd á hádegi í gær í umdæmi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Þegar jafnlangt var í kjördag 2020 höfðu 25.734 greitt atkvæði í því umdæmi. Þá má sjá á töflunni hér samanburð á fjölda greiddra atkvæða utan kjörfundar fimm dögum fyrir kjördag í síðustu sveitarstjórnar-, Alþingis- og forsetakosningum. Kort/mbl.is Taflan sýnir að núna hafa næstum tvöfalt fleiri greitt atkvæði en þegar jafnlangt var í alþingiskosningarnar í nóvember 2024 og í forsetakjörinu sem fram fór í maí sama ár. Á hinn bóginn er munurinn nærri því þrefaldur ef sveitarstjórnarkosningarnar í mars síðastliðnum eru hafðar til samanburðar. Líklegri til að kjósa þegar mjótt er á mununum Stefanía Óskarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í íslenskum stjórnmálum, segir einkum hægt að benda á fimm ástæður sem gætu útskýrt hvers vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslan hefur farið svona vel af stað: „Fyrst ber að nefna tímasetningu atkvæðagreiðslunnar en síðsumars er fólk enn á faraldsfæti og því ekki endilega á landinu eða á sínum skráða kjörstað daginn sem kosið er,“ segir Stefanía og bendir á að þetta geti valdið því að óvenjumargir ákveði að greiða sitt atkvæði snemma. Stefanía Óskarsdóttir. mbl.is/Anton Brink Lífleg þátttaka endurspeglar eflaust líka að kosningin varðar mikið hitamál og að almenningur líti svo á að verið sé að leggja mikilvæga spurningu fyrir kjósendur. „Í þriðja lagi eru valkostirnir í þjóðaratkvæðagreiðslunni einfaldir, ólíkt t.d. þegar þjóðaratkvæðagreiðsla var haldin 2012 um tillögur stjórnlagaráðs. Þar þurfti að svara sex spurningum og kjósendur þurftu að setja sig inn í tillögur ráðsins til að taka afstöðu, enda var þátttaka óvenjudræm í þeirri kosningu og mættu aðeins 48% kjósenda á kjörstað.“ Stefanía segir heldur ekki mega vanmeta áhrif þess að nokkuð öflug kosningabarátta hafi farið fram í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, með auglýsingaherferðum, fundaröðum og úthringingum, og báðar fylkingar keppist við að hvetja fólk til að mæta á kjörstað. „Fimmta skýringin er hve mjótt er á mununum í skoðanakönnunum en það virkar hvetjandi á kjósendur að leggja sín lóð á vogarskálarnar. Ef kannanir sýndu afdráttarlausan stuðning við „já“ eða „nei“ þá væri fólk sennilega líklegra til að hugsa sem svo að það breytti litlu um niðurstöðuna ef það kemst ekki á kjörstað,“ segir hún. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Rapparinn segir nei Yngsti hópurinn hallast að nei Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður „Við leitum lausna og göngum til samninga“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tugir slasaðir eftir að flugeldar sprungu Reglusafnið skal innleiða í heild Fimm skýringar á mikilli þátttöku Skammsýni í viðbrögðum NATO Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Umræðan Vildum við missa af EES? Efnahagslögsaga þjóðarinnar og aðild að ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varanlegar undanþágur ólíklega í boði Meðalaldur bænda fer heldur lækkandi Endaði á að moka ofan í holuna Yfirmaður CIA hitti ekki Pútín Mest lesið Í gær Í vikunni „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Litið á mig sem dópista“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Nýjast á mbl.is » Tugir slasaðir eftir að flugeldar sprungu Reglusafnið skal innleiða í heild Fimm skýringar á mikilli þátttöku Skammsýni í viðbrögðum NATO Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Umræðan Vildum við missa af EES? Efnahagslögsaga þjóðarinnar og aðild að ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Litið á mig sem dópista“ Hundruð ferðamanna saknað í Nepal Varanlegar undanþágur ólíklega í boði Kadis ýjar að aðlögun við aðild Mest lesið Í gær Í vikunni „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Litið á mig sem dópista“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Katrín rýfur þögnina Byrja að rukka vegtolla í næsta mánuði Fannst látinn á botni hyls: Rannsakað sem slys Banaslys varð í Stuðlagili Litlu munaði að illa færi Handtökur vegna innbrotsins í minkabúið Á sjötta tug borgarstarfsmanna sagt upp Hátt hlutfall með ólöglegt streymi Hranalegt viðmót í viðræðum við ESB Hlýtur tvö og hálft ár fyrir nauðgun í heimahúsi Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Embætti forstjórans ekki auglýst „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“