Innlent | Morgunblaðið | 27.8.2026 | 7:56 Ókunnugur maður reyndist hvatning Þorsteinn Haukur blautur og kaldur að loknu maraþonhlaupinu. Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Reykjavíkurmaraþon Myndir: Blautt, kalt en gott Reykjavíkurmaraþon Hlauparar mega búast við því að blotna „Okkur hefur gengið miklu betur en við bjuggumst við“ Ýmist mótvindur eða meðvindur í hlaupinu Nærri uppselt í Reykjavíkurmaraþonið » Fleiri tengdar fréttir „Ef einhver hefði sagt við mig fyrir þremur árum síðan að ég ætti eftir að hlaupa maraþon þá hefði ég ekki lagt húsið undir,“ segir Þorsteinn Haukur Harðarson sem hljóp 42 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu síðasta laugardag til styrktar Píeta-samtökunum. Þorsteinn er sannkallaður seiglukarl því hann fékk ekki mestu líkamlegu burðina í vöggugjöf. Ofan á það hafði hann ekki hugsað vel um sig í ýkja langan tíma eða þar til fyrir þremur og hálfu ári. „Ég er með CP [hreyfihömlun] vinstra megin og hef glímt við það alla ævi að skrokkurinn sé lélegur vegna heilablæðingar sem varð í fæðingu. Ég hafði misst stjórnina og var orðinn 150 kíló. Svo gerðist það dag einn í janúar árið 2023 að ég var að beygja mig eftir einhverju fyrir son minn og stóð ekki upp aftur. Þá má segja að vinstri fóturinn hafi bara gefið sig undan þyngdinni og álaginu,“ segir Þorsteinn. Skaðinn var þó ekki varanlegur og hann fékk tækifæri til að bæta úr. „Ég endaði á sjúkrahúsi með gula spjaldið en var gert ljóst að í óefni stefndi ef ég myndi ekki gera eitthvað í mínum málum. Ég var í fjórar vikur á Heilsustofnun í Hveragerði og fór að hreyfa mig þar. Ég fann mig smám saman í hlaupum.“ „Ógeðslega erfitt“ hlaup Þorsteinn Haukur sagðist hafa þurft að byrja rólega en hafi árið 2024 hlaupið 10 kílómetrana í Reykjavíkurmaraþoninu og bætt í árið eftir. „Í fyrra hljóp ég hálft maraþon og bjóst við að það yrði hápunkturinn hjá mér. Ég sá ekki fyrir mér að líkaminn myndi þola lengri vegalengd en 21 kílómetra. Eftir hlaupið í fyrra var ég að fylgjast með fólki koma í mark og drakk í mig stemninguna. Þá sá ég mann ljúka maraþoni með tvo gervifætur og hann varð mér svo mikil hvatning að ég ákvað á staðnum að reyna við maraþon árið 2026.“ Vegna þeirra líkamlegu hindrana sem Þorsteinn Haukur þurfti að ryðja úr vegi hefur hann sýnt mikla seiglu og þrautseigju í undirbúningi fyrir maraþonið. Hann viðurkennir fúslega að líðanin hafi ekki verið góð þegar leið á hlaupið. „Ég þarf að passa vel upp á vinstri hliðina en eins og sjúkraþjálfarinn hefur bent á þá geri ég ekki mikið annað en að tylla mér í vinstri fótinn þegar ég er á hlaupum. Krafturinn kemur 80% frá hægri hliðinni. Engu að síður hefur þetta gengið vel. Ég hafði séð fyrir mér gleðina sem myndi fylgja því að koma í mark í maraþoni þar sem fjölskyldan myndi taka á móti manni. En ég verð að segja alveg eins og er að þetta hlaup var ógeðslega erfitt. Á lokakaflanum var mikill mótvindur, hleðslan búin í heyrnartólunum, mér var illt alls staðar og var blautur og kaldur,“ segir Þorsteinn en síðar um daginn fór heilinn að framleiða efni sem kalla fram vellíðan. „Ég fann því ekki fyrir gleði þegar ég kom í mark en ég fór í framhaldinu í sund og gufu. Í gufunni fékk ég hlýju í kroppinn og þar helltust tilfinningarnar yfir mig. Því fylgdi mikið stolt að hafa lokið maraþonhlaupi enda hefur þetta verið þrotlaus vinna í þrjú ár og mér fannst ég uppskera á laugardaginn,“ segir Þorsteinn sem segir Píetasamtökin hafa orðið fyrir valinu vegna þess að vinur hans Michael Newberry hafi svipt sig lífi fyrir tveimur árum. „Mér finnst þetta verðugt málefni og um leið getur maður látið gott af sér leiða með því að safna smá aur fyrir samtökin.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Reykjavíkurmaraþon Myndir: Blautt, kalt en gott Reykjavíkurmaraþon Hlauparar mega búast við því að blotna „Okkur hefur gengið miklu betur en við bjuggumst við“ Ýmist mótvindur eða meðvindur í hlaupinu Nærri uppselt í Reykjavíkurmaraþonið » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ókunnugur maður reyndist hvatning Ástand Haraldar „mjög alvarlegt“ Rannsaka þrjú mál tengd heimilisofbeldi Lundapysja fannst í Vesturbænum Yfir 1.300 manns er saknað Umræðan Trúin á Ísland Sykurhúðun á framsali valds til Brussel Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hvað á að hafa mikið vit fyrir fólki?“ „Við leitum lausna og göngum til samninga“ Meta samþykkir að greiða 2.000 milljarða í sátt „Það er meira fram undan“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Endurskoðar endurgreiðslur Fimm skýringar á mikilli þátttöku Beiðni send ráðuneytinu fyrir ári Reglusafnið skal innleiða í heild „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Nýjast á mbl.is » Ókunnugur maður reyndist hvatning Ástand Haraldar „mjög alvarlegt“ Rannsaka þrjú mál tengd heimilisofbeldi Lundapysja fannst í Vesturbænum Yfir 1.300 manns er saknað Umræðan Trúin á Ísland Sykurhúðun á framsali valds til Brussel Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Endaði á að moka ofan í holuna „Litið á mig sem dópista“ Kadis ýjar að aðlögun við aðild Myndskeið: Skyndiflóðið eirði engu Mest lesið Í gær Í vikunni Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Endurskoðar endurgreiðslur Fimm skýringar á mikilli þátttöku Beiðni send ráðuneytinu fyrir ári Reglusafnið skal innleiða í heild „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Loka