Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tólf fórust í skógareldum í Alsír

  • What: Wildfires in Algeria due to drought and climate change
  • Impact: 12 people killed, 54 injured, thousands displaced
Read Full Article →

Skógareldar eru algengir í Bejaia-héraði í norður Alsír vegna þurrka og loftslagsbreytinga.EPA / STR Tólf fórust og 54 eru slasaðir, þar af sex alvarlega, eftir mikla skógarelda í norðausturhluta Alsír í gær. France 24 greinir frá því að rúmlega 150 skógareldar hafi logað í landinu, þar af 36 í Bejaia-héraði. Fjöldi fólks þurfti að yfirgefa heimili sín vegna eldanna. Að minnsta kosti sex fórust í skógareldum í síðasta mánuði. Eldar hafa verið tíðir í Alsír í sumar. Skógareldar kvikna á hverju sumri í norðurhluta landsins vegna þurrka og loftslagsbreytinga. Tugir hafa farist í eldum á síðustu árum, þúsundir hektara skóga hafa brunnið og margir hafa misst heimili sín.

Share this article