Innlent | Morgunblaðið | 27.8.2026 | 10:35 Gjaldalækkanir mjög jákvæðar Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Það sem við höfum séð gerast eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar er víða mjög jákvætt. Við vitum það að íþyngjandi regluverk og þ.m.t. innviðagjöld og önnur gjöld hafa verið hluti þess vanda sem við áttum við að etja. Það er jákvætt að sjá að sveitarfélög taka það til sín að það skiptir máli, bæði fyrir atvinnuuppbyggingu og íbúðauppbyggingu, hvernig þau haga sínum gjaldskrármálum,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið. Viðbragða hans var leitað við þeim tíðindum að þrjú sveitarfélög hafa lækkað gjaldskrár sínar, þ.e. Reykjavík hvað varðar gatnagerðargjöld af bílastæðum í kjöllurum fjölbýlishúsa, Reykjanesbær hefur fellt niður byggingarréttargjald af atvinnu- og íbúðarhúsnæði og Árborg hefur lækkað slík gjöld af íbúðarhúsnæði og fellt þau niður af atvinnuhúsnæði. Nokkuð ólíkar áherslur á milli sveitarfélaga „Það er merkilegt að sjá að svo virðist sem að nokkuð ólíkar áherslur séu á milli sveitarfélaga. Þau þurfa líka að einhverju marki að geta þróað sína gjaldskrárstefnu með tímanum. Það skiptir máli að reksturinn sé líka á sama tíma sjálfbær. Heilt yfir værir mjög æskilegt ef við gætum byggt upp mælaborð eða gegnsætt kerfi sem sýndi og bæri saman með einföldum hætti hvernig regluverkið er breytilegt frá einu sveitarfélagi til hins næsta,“ segir Bjarni og nefnir að þá gæti almenningur, verktakar og aðrir borið saman gjaldskrár einstaka sveitarfélaga. Dæmi væru til um slíkt, t.d. í Danmörku. Gjaldahækkanir juku verðbólgu „Við erum auðvitað svekkt yfir því að vörugjalda- og gjaldskrárhækkanir hafi í raun fleytt verðbólgunni yfir viðmið kjarasamninga. Færa má fyrir því rök að hefði ekki komið til þessara breytinga, væru kjarasamningarnir innan vikmarka hvað verðar verðbólgustigið í dag. Ég hefði viljað sjá að meira aðhalds hefði verið gætt á gjaldahliðinni en tekjuhliðinni,“ segir hann. „Þessi sveitarfélög eru greinilega að horfa til þess, varðandi svigrúm til atvinnustarfseminnar, að skipt geti sköpum hvernig menn stilla af sínar gjaldskrár. Inn í þetta spila auðvitað líka hinir ýmsu frestir, sveigjanleiki við skipulagsgerð, að tilbúnar séu lóðir til bygginga o.fl. Það verður fróðlegt að sjá hvaða áhrif þetta mun hafa í framhaldinu. En í augnablikinu er vaxtastigið mesta ógnin við frekari uppbyggingu og við verðum einfaldlega að fara að uppskera og eftir þetta langa tímabil hárra vaxta verðum við að fara að sjá verðbólguvæntingar koma niður,“ segir Bjarni Benediktsson. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Maðurinn sem lést sagður vera pólskur Óábyrg umræða um evruna Dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir frelsissviptingu Gjaldalækkanir mjög jákvæðar Sonur Britney Spears í tískuheiminn Umræðan Trúin á Ísland Sykurhúðun á framsali valds til Brussel Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hundruð ferðamanna saknað í Nepal Kos vill breyta aðildarferli Myndskeið: Skyndiflóðið eirði engu Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Styttir heimsókn sína til Íslands Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Endurskoðar endurgreiðslur Ókunnugur maður reyndist hvatning Verðbólgan sú mesta í tvö ár „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Nýjast á mbl.is » Maðurinn sem lést sagður vera pólskur Óábyrg umræða um evruna Dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir frelsissviptingu Gjaldalækkanir mjög jákvæðar Sonur Britney Spears í tískuheiminn Umræðan Trúin á Ísland Sykurhúðun á framsali valds til Brussel Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Vont mál fyrir alla þjóðina“ Segja framsetningu Viðskiptaráðs villandi Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Styttir heimsókn sína til Íslands Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Endurskoðar endurgreiðslur Ókunnugur maður reyndist hvatning Verðbólgan sú mesta í tvö ár „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Loka