Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Stjórnvöld dugleg að kasta spreki á verðbólgubálið“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.8.2026 | 11:17 „Stjórnvöld dugleg að kasta spreki á verðbólgubálið“ Vilhjálmur segir að ekki sé hægt að gefast upp á verkefninu og ætla að láta erlenda aðila sjá um að vinna bug á verðbólgunni. Samsett mynd/Eggert Guðmundur Hilmarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Vont mál fyrir alla þjóðina“ „Það tók enginn ábyrgð á þessari stöðu“ Verðbólgan sú mesta í tvö ár „Skýr áfellisdómur yfir efnahagsstjórninni“ Tiltrú á hagstjórnina hverfandi » Fleiri tengdar fréttir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness, segir að stjórnvöld hafi verið dugleg að kasta spreki á verðbólgubálið. Hagstofan birti í morgun nýjustu verðbólgutölur og fer tólf mánaða verðbólga úr 5,3 prósentum upp í 5,6 prósent og hefur hún ekki mælst hærri í tvö ár. Þar með er ljóst að forsendur gildandi kjarasamninga eru brostnar. Þær kveða á um að ef verðbólga mælist meira en 4,7 prósent í lok ágúst sé heimilt að segja kjarasamningum upp á almennum vinnumarkaði. Frétt af mbl.is Verðbólgan sú mesta í tvö ár „Það er mikilvægt að hafa eitt í huga. Stjórnvöld hafa haft áhrif á vísitöluna með þeim hætti að lækka virðisaukaskattinn á bensín og dísil úr 24 prósentum niður í 11%. Það fellur úr gildi 1. september þannig að í raun og veru að ef ekki hefði verið gripið til þeirrar aðgerðar væri verðbólgan í kringum 6 prósent,“ segir Vilhjálmur í samtali við mbl.is. Vilhjálmur segir ljóst að stjórnvöld hafi verið dugleg að kasta spreki á verðbólgubálið eins og fram kemur hjá Hagstofunni og bendir þar á hækkun á háskólagjöldum úr 75 þúsund í 100 þúsund og 1. september hækki komugjöld á heilsugæsluna um 100 prósent sem muni hafa áhrif á næstu verðbólgumælingu. Menn búnir að gefast upp „Verkefnið er rosalegt og það er augljóst að menn eru búnir að gefast upp á því. Það er hægt að greina hvernig verðbólgan verður til eins og kom fram hjá Seðlabankastjóra á dögunum þar sem hann hjólaði í opinbera aðila sem væru að keyra verðbólguna áfram,“ segir verkalýðsleiðtoginn frá Akranesi. Frétt af mbl.is „Vont mál fyrir alla þjóðina“ Vilhjálmur, sem hefur látið þá skoðun sína í ljós að Íslandi sé best borgið utan Evrópusambandsins, segir að ekki sé hægt að gefast upp á verkefninu og ætla að láta erlenda aðila sjá um að vinna bug á verðbólgunni. Hann segir að það muni ekki gerast. „Við munum alltaf sjálf þurfa að finna lausnir á þessu og það hefur ekki staðið á íslenskri verkalýðshreyfingu að vera með í þeirri vegferð. En þegar aðilar haga sér með þessum hætti, sama hvort það er hið opinbera, verslun og þjónusta, Samtök atvinnulífsins og aðrir, mylji niður traustið sem skiptir höfuðmáli í svona vinnu,“ segir hann. Vilhjálmur segir að verkalýðshreyfingin hafi nú frest til 8. október til að sjá hvort hægt verði að finna lausn á því að leysa málin án þess að kjarasamningarnir verði lausir. Frétt af mbl.is „Það tók enginn ábyrgð á þessari stöðu“ „Það verður bara að koma í ljós hvort viðsemjendur okkar séu tilbúnir til þess að setjast niður og finna lausn. Það er ómögulegt að segja til um það hvort það takist eða ekki.“ Allir þurfa að róa í sömu átt Vilhjálmur segir að það komi öllum til góða að finna lausn á verðbólgunni og það sé hægt með því að stjórnvöld og sveitarfélög skuldbindi sig til þess að hækka ekki gjaldskrá um meira en 2,5 prósent. Hann segir líka að verslun og þjónusta geti skuldbindi sig til þess að virða verðbólgumarkmið Seðlabankans og hækki ekki verðlag um meira en 2,5 prósent það sem eftir lifir af kjarasamningi sem rennur út í desember 2027. „Það er til mikils að vinna. Við getum þetta en þá þurfa allir að róa í sömu átt.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Vont mál fyrir alla þjóðina“ „Það tók enginn ábyrgð á þessari stöðu“ Verðbólgan sú mesta í tvö ár „Skýr áfellisdómur yfir efnahagsstjórninni“ Tiltrú á hagstjórnina hverfandi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Inflation at highest level in two years „Stjórnvöld dugleg að kasta spreki á verðbólgubálið“ Með 16 kíló af marijúana falin í ferðatösku Fer til Sádi-Arabíu fyrir háa fjárhæð Maðurinn sem lést sagður vera pólskur Umræðan Trúin á Ísland Hvað er í pakkanum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Meta samþykkir að greiða 2.000 milljarða í sátt Segir 517 útlendinga ófundna eftir mannskæð flóð Yfir 1.300 manns er saknað Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Styttir heimsókn sína til Íslands Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Endurskoðar endurgreiðslur Ókunnugur maður reyndist hvatning Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Nýjast á mbl.is » Inflation at highest level in two years „Stjórnvöld dugleg að kasta spreki á verðbólgubálið“ Með 16 kíló af marijúana falin í ferðatösku Fer til Sádi-Arabíu fyrir háa fjárhæð Maðurinn sem lést sagður vera pólskur Umræðan Trúin á Ísland Hvað er í pakkanum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Meta samþykkir að greiða 2.000 milljarða í sátt Mest lesið Í gær Í vikunni Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Styttir heimsókn sína til Íslands Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Voru vonarstjörnur Viðreisnar en kjósa nú nei Endurskoðar endurgreiðslur Ókunnugur maður reyndist hvatning Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Steik í Köben á verði tveggja flugmiða „Litið á mig sem dópista“ Beint: Kristrún ávarpar þjóðina Ökumaður „með allt í skrúfunni" Fjölskyldan óskar eftir friði til að syrgja Annie Mist greinir frá afstöðu sinni Kadis ýjar að aðlögun við aðild Bústaður biskups flyst að Mosfelli „Það er meira fram undan“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Katrín rýfur þögnina „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Loka

Share this article