Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Við­skiptaráð hafnar full­yrðingum SI um rang­færslur

Read Full Article →

Viðskiptaráð hafnar fullyrðingum Samtaka iðnaðarins um að rangfærslur sé að finna í skýrslunni The Icelandic Economy 2026 og örmyndbandi sem byggir á efni hennar. Ráðið segist standa við gögn og framsetningu skýrslunnar. Samtök iðnaðarins gagnrýndu Viðskiptaráð í yfirlýsingu í morgun og sögðu meðal annars að ráðið gæti ekki tækni- og hugverkaiðnaðar og gæfi villandi mynd af útflutningi með því að leggja áherslu á þrjár stórar útflutningsstoðir; ferðaþjónustu, sjávarafurðir og ál og stóriðju. Sjá einnig SI segir Við­skiptaráð fara með rang­færslur Viðskiptaráð vísar gagnrýninni á bug og segir framsetningu sína byggja á opinberum gögnum Hagstofu Íslands. Í grafi sem birtist bæði í skýrslunni og myndbandinu sé útflutningi skipt í fjóra flokka: ferðaþjónustu, sjávarafurðir, ál og stóriðju og annan útflutning. Síðastnefndi flokkurinn hafi staðið undir 24% útflutningstekna árið 2025. Ráðið segir því rangt að það haldi því fram að allur útflutningur Íslands byggist á þremur atvinnugreinum eða að horft sé fram hjá öðrum útflutningsgreinum. Í skýrslunni sé jafnframt fjallað sérstaklega um aðrar útflutningsgreinar. Þar falli meðal annars undir fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta, gjöld fyrir hugverk og rannsóknir og þróun, viðskipta- og fagþjónusta, iðnaðarvörur og lækningavörur. Ráðið segir jafnframt að „tækni- og hugverkaiðnaður“ sé ekki sjálfstæður flokkur í þeirri sundurliðun Hagstofunnar sem skýrslan byggir á, heldur skilgreining Samtaka iðnaðarins sem nái þvert yfir margar atvinnugreinar. Ólík framsetning en ekki rangfærsla Viðskiptaráð segir eðlilegt að samtök og greiningaraðilar flokki atvinnustarfsemi með ólíkum hætti og bendir á að ráðið hafi sjálft um árabil fjallað um sambærilegan þverskurð atvinnulífsins undir heitinu alþjóðageirinn. „Slíkar skilgreiningar geta verið gagnlegar til greiningar. Þær breyta hins vegar ekki frumgögnunum og það verður ekki rangfærsla að birta opinber gögn án þess að endurflokka þau samkvæmt sömu skilgreiningu,“ segir í yfirlýsingu Viðskiptaráðs. Viðskiptaráð segir mun á skilgreiningum og framsetningu ekki gefa tilefni til fullyrðinga um rangfærslur og vísar gagnrýni Samtaka iðnaðarins á bug.

Share this article