Viðskipti | mbl | 27.8.2026 | 12:28 American Airlines snúa aftur til Íslands American Airlines-þota af gerðinni Airbus A321neo. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Bandaríska flugfélagið American Airlines tilkynnti í dag um nýja áætlunarleið milli Keflavíkurflugvallar og Fíladelfíu, sem hefst 27. maí á næsta ári. Flogið verður daglega yfir sumartímann á þotu af gerðinni Airbus A321neo sem tekur 196 farþega. Hætti í heimsfaraldrinum American Airlines snýr þar með aftur til Íslands eftir nokkurra ára fjarveru. Félagið hóf flug milli KEF og Dallas-Fort Worth 2018 og áformaði að bæta Fíladelfíu við sem áfangastað 2020. Ekkert varð af því vegna heimsfaraldursins og hætti félagið einnig flugi milli Íslands og Dallas, en sú ákvörðun var reyndar tekin árið 2019. Frétt af mbl.is Beint flug til Dallas leggst af „Við á Keflavíkurflugvelli bjóðum American Airlines aftur velkomið til okkar og fögnum þessari ákvörðun,“ er haft eftir Ómari Svavarssyni, framkvæmdastjóra viðskipta á Keflavíkurflugvelli, í tilkynningu. „Það er ánægjulegt að fá félagið aftur í flugvallarsamfélagið okkar á vellinum. Þessi nýja leið styrkir tengingu okkar við Norður-Ameríku og sýnir að þetta stóra flugfélag hefur sterka trú á áfangastaðnum Íslandi.“ Ört vaxandi tengiflugvöllur Haft er eftir José A. Freig, framkvæmdastjóra alþjóðlegra rekstrarmála og samstarfsaðila hjá American Airlines, að félagið sé spennt fyrir því að snúa aftur til Íslands. „Með þessari nýju leið fá farþegar frá Íslandi og Norðurlöndunum greiðan aðgang að einum ört vaxandi tengiflugvelli okkar í Bandaríkjunum. Frá Fíladelfíu geta þeir ferðast áfram til meira en 100 áfangastaða víðs vegar um Bandaríkin og til annarra heimshluta.“ Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Pólitískir jarðskjálftar í lykilríkjum ESB Sigurður Már Jónsson Heimsendaspár og gervigreind Fleira áhugavert Yfir 1.300 manns er saknað Endurskoðar endurgreiðslur Beiðni send ráðuneytinu fyrir ári Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Kauptækifæri á fasteignamarkaði Endaði á að moka ofan í holuna Hagnaður Sýnar jókst um 39% Guðmundur Fertram í nýju hlutverki Viðskiptaráð hafnar fullyrðingum SI Stracta-hótelin á Hellu til sölu Brynjar leiðir vöxt og viðskiptaþróun hjá Corus Rótgróin hótel fá ný nöfn Forstjóri Elkem Ísland tekur við nýju starfi Heildartekjur Nova klúbbsins jukust um 22% Endaði á að moka ofan í holuna Stracta-hótelin á Hellu til sölu Guðmundur Fertram í nýju hlutverki Hagnaður Sýnar jókst um 39% Brynjar leiðir vöxt og viðskiptaþróun hjá Corus Rótgróin hótel fá ný nöfn Forstjóri Elkem Ísland tekur við nýju starfi Heildartekjur Nova klúbbsins jukust um 22% Rekstrarhagnaður Reita umfram áætlanir Knútur Steinn ráðinn framkvæmdastjóri BMW á Íslandi Nóa-Siríusi skipt upp eftir eigendaskiptin Rótgróin hótel fá ný nöfn Endaði á að moka ofan í holuna Kauptækifæri á fasteignamarkaði Breytingar hjá Símanum Ætla að þrefalda veltuna á 5 árum Stracta-hótelin á Hellu til sölu Halda áfram uppbyggingu í Þjórsárdal Guðmundur Fertram í nýju hlutverki Viðræðum Sýnar og Símans lokið án samnings Pistlar » Sigurður Már Jónsson Pólitískir jarðskjálftar í lykilríkjum ESB Sigurður Már Jónsson Heimsendaspár og gervigreind Fleira áhugavert Kos vill breyta aðildarferli Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Kauptækifæri á fasteignamarkaði Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Kauptækifæri á fasteignamarkaði Endaði á að moka ofan í holuna Hagnaður Sýnar jókst um 39% Guðmundur Fertram í nýju hlutverki Viðskiptaráð hafnar fullyrðingum SI Stracta-hótelin á Hellu til sölu Brynjar leiðir vöxt og viðskiptaþróun hjá Corus Rótgróin hótel fá ný nöfn Forstjóri Elkem Ísland tekur við nýju starfi Heildartekjur Nova klúbbsins jukust um 22% Endaði á að moka ofan í holuna Stracta-hótelin á Hellu til sölu Guðmundur Fertram í nýju hlutverki Hagnaður Sýnar jókst um 39% Brynjar leiðir vöxt og viðskiptaþróun hjá Corus Rótgróin hótel fá ný nöfn Forstjóri Elkem Ísland tekur við nýju starfi Heildartekjur Nova klúbbsins jukust um 22% Rekstrarhagnaður Reita umfram áætlanir Knútur Steinn ráðinn framkvæmdastjóri BMW á Íslandi Nóa-Siríusi skipt upp eftir eigendaskiptin Rótgróin hótel fá ný nöfn Endaði á að moka ofan í holuna Kauptækifæri á fasteignamarkaði Breytingar hjá Símanum Ætla að þrefalda veltuna á 5 árum Stracta-hótelin á Hellu til sölu Halda áfram uppbyggingu í Þjórsárdal Guðmundur Fertram í nýju hlutverki Viðræðum Sýnar og Símans lokið án samnings Loka