Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dansað við skarkala inn í eilífðina, vel tilhafður í Versace

Read Full Article →

Gugusar, HúbbaBúbba, Hiilmar og Eyþór Wöhler – Aldrei til Fyrr í sumar kom út lagið Aldrei til sem er áhugavert samstarf tónlistarfólks af yngri kynslóðinni. Það eru þau Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir eða Gugusar, Húbbabúbba, Hiilmar og Eyþór Wöhler sem sameinast í þessum sumarslagara sem er kominn með yfir hálfa milljón spilana á Spottanum. Undiraldan fimmtudaginn 27. ágúst Tískudrósirnar í Dimmu og DJ Margeir eru sennilega best til hafða tónlistarfólkið sem kom fram í Undiröldum vikunnar - en þeir fengu harða samkeppni. DJ Margeir ásamt Magugu – Strike a Pose (I'm Wearing Versace) Plötusnúðurinn DJ Margeir er nýbúinn að eiga magnaða Menningarnótt eins og síðustu ár þar sem hann tryllir gesti á Klapparstígnum. Í tilefni uppákomunnar sendi hann frá sér lagið Strike a Pose (I'm Wearing Versage) sem er innblásið af stjörnulögfræðingnum Villa Vill. Intr0beatz – Steps Ársæll Þór Ingvarsson heldur áfram að hamra út hústónlist og hans nýjasta lag er Steps sem kom út um miðjan ágúst. Alaska1867 ásamt Birni – Tígrisdýr Tónlistarkonan Alaska1867 stefnir á að gefa út sína fyrstu plötu í haust hjá útgáfufyrirtækinu Vetur Music. Fyrsta lagið af henni er lagið Tígrisdýr sem hún flytur með Birni en Matthías Eyfjörð Jóhannesson mixaði og Ben Pramuk masteraði. Midiem – Fallen Star Hljómsveitina MIDIEM skipa Mímir Guðvarðsson, Diljá Mikaels og Emil Engel. Þríeykið gefur út tónlist sem er innblásin af lífsins reynslu og upplifuninni að vera mannvera. Lagið Fallen Star var samið af þeim yfir páskana þegar þau sáu stjörnuhrap á heiðskírum himni, umvafin fjöllunum á Hvanneyri. Undiraldan þriðjudagurinn 25. ágúst Tískudrósirnar í Dimmu og DJ Margeir eru sennilega best til hafða tónlistarfólkið sem kom fram í Undiröldum vikunnar - en þeir fengu harða samkeppni. Dimma – Skarkali! DIMMA snýr nú aftur tvíefld, með nýja liðsskipan og nýtt lag sem ber heitið Skarkali! og er það fyrsta sem heyrist frá DIMMU í 5 ár. Lagið gefur hugmynd um hverju fólk má eiga von á sjöundu breiðskífu sveitarinnar, sem er í vinnslu og væntanleg á næsta ári. DIMMA samanstendur af Ivan Mendez söngvara, Skúla Gíslasyni trommuleikara, Silla Geirdal bassaleikara og Ingó Geirdal gítarleikara. Haraldur Ari Stefánsson – Tvær leiðir Þriðja lagið af væntanlegri plötu Haraldar Ara Stefánssonar – Fljótið – sem er væntanleg á næstu vikum. Lagið heitir Tvær leiðir og er framleitt af Hermigervli en lag og texti er eftir Harald. Rúnar Eff – Billie Jean Þá er það kunnuglegt Suðurríkjarokk eða kántrí en Rúnar Eff hefur sent frá sér ábreiðu af Michael Jackson-laginu Billie Jean. Lagið er tekið af plötunni No Need To Run og kom út í lok júlí. Skýjaglópur, Seppi – Fullir gámar Skýjaglópur er rappari og pródúser sem hefur verið að gera hiphop undir mismunandi nöfnum í fjölda ára. Fullir gámar er lokalag á plötunni hans Mixtúra og fjallar um svokallaðan áfallaarf. Það snertir líka á mikilvægi þess að leita sér hjálpar og reyna að verða að betri manni. Rapparinn Seppi er einnig með gestaerindi. Ársæll – Á sínum stað Á sínum stað er lag sem fjallar um hugleiðingar rétt rúmlega miðaldra manns um lífið sem Ársæll semur og segir að sé rólegt og ljúft popp í eyrun. Sjana Rut – Mine Mine er nýtt lag frá íslensku tónlistar- og listakonunni Sjönu Rut sem segir um lagið að það sé uppbyggilegt skvísupopp sem fjallar um mikilvægi þess að standa með sjálfum sér. Það voru Ásmundur Jóhannsson og Sjana Rut sem forrituðu, en Pálmi Sigurhjartarson lék á hljómborð. Arnþór Sigurðsson – Viskulausa veröld Lagið Viskulausa veröld var samið í kringum 1986 og textinn einnig. Lagið er því orðið um 40 ára en er nú gefið út í fyrsta skipti. Lagið telst þjóðlagasöngur og höfundurinn söngvaskáld en það var Snorri Snorrason sem útsetti lagið og spilaði á öll hljóðfæri. Undiraldan á Spotify

Share this article