Lítið hefur sést til Péturs Marteinssonar oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík frá sveitarstjórnarkosningunum í vor. Það er kannski engin furða að hann hafi haldið sér til hlés enda var niðurstaða kosninganna töluverð vonbrigði fyrir vonarstjörnuna sem var sérvalin af formanninum Kristrúnu Frostadóttur. Nú rétt fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið dró Sjá-hreyfingin Pétur á ný fram í sviðsljósið. Í auglýsingunni, sem er svipað einfeldningsleg og flest annað sem frá umræddri hreyfingu kemur, líkir Pétur ákvörðun íslensku þjóðarinnar um hvort ganga skuli til viðræðna við ESB við það þegar hann gekk til liðs við sænska knattspyrnuliðið Hammarby frá Fram á sínum tíma. Óþarfi er að eyða mörgum orðum á það hve vonlausa samlíkingu er um að ræða. Hrafnarnir hefðu aftur á móti gaman að því að vita hvort það hefði breytt ákvörðun Péturs ef hann hefði þurft að borga með sér til að fá að ganga til liðs við sænska liðið? Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .