Ólafur Ólafsson var í stóru hlutverki í Grindavíkurþáttunum.Mummi Lú Heimildaþættirnir um körfuboltalið Grindavíkur sem unnir voru um karlalið félagsins í körfubolta á umrótartímunum þegar bærinn var rýmdur vegna jarðhræringa, fékk í gær stærstu verðlaunin á NBA Summer League Festival. Hátíðin var haldin í þriðja sinn og er haldin af NBA körfuboltadeildinni í Bandaríkjunum í samvinnu við framleiðslufyrirtæki fyrrverandi NBA stjörnunnar Kevins Garnett, leikarans Marks Walberg og Deons Taylor kvikmyndaframleiðanda. Grindavíkurþættirnir eru eftir Garðar Örn Arnarson og Sigurð Má Davíðsson og voru framleiddir af Sýn. Bræðurnir Ólafur Ólafsson og Jóhann Ólafsson voru í stóru hlutverki í þessum heimildaþáttum.