Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Efast um uppsagnir á sama tíma og styrkja á framlínuþjónustu

Read Full Article →

Það vekur alvarlegar spurningar að fjölmennum hópi starfsfólks sé sagt upp á sama tíma og borgaryfirvöld segjast ætla að styrkja framlínuþjónustu, tryggja samfellu og koma í veg fyrir þjónusturof. Þetta segja Félagsráðgjafafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands og Viska stéttarfélag um uppsögn 86 starfsmanna hjá Reykjavíkurborg. Í sameiginlegri yfirlýsingu félaganna segir að á bak við hvert stöðugildi séu verkefni og fólk sem þurfi á þjónustu að halda. „Börn og fjölskyldur hætta ekki að þurfa stuðning þótt skipuriti sé breytt eða starfstöðvar færðar til. Þegar fagfólk hverfur úr starfi getur rof orðið á þjónustu og mikilvæg þekking á aðstæðum einstaklinga og fjölskyldna tapast.“ Félögin segja að sýna verði fram á hvernig komið verði í veg fyrir aukinn málafjölda og vinnuálag á hvern starfsmann ef það á að flytja verkefni þeirra sem var sagt upp yfir á aðra starfsmenn. „Félögin óska eftir skýrum svörum frá Reykjavíkurborg um forsendur og framkvæmd breytinganna, áhrif þeirra á starfsfólk, málafjölda og vinnuálag og hvernig tryggt verði að þjónusta við börn, fjölskyldur og aðra viðkvæma hópa sem treysta á þjónustu borgarinnar, skerðist ekki,“ segir í yfirlýsingunni.

Share this article