Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kaffistofunni var boðið húsnæði

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 28.8.2026 | 13:25 Kaffistofunni var boðið húsnæði Nú hillir undir lausn í málefnum kaffistofu Samhjálpar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Nú hillir undir lausn í málefnum kaffistofu Samhjálpar sem verið hefur á hrakhólum undanfarið sökum þess að byggingarleyfi fyrir áformaða kaffistofu við Grensásveg var fellt úr gildi. Hefur kaffistofan haft tímabundið afdrep í Fíladelfíukirkjunni á meðan ekki hefur fundist lausn á húsnæðismálum kaffistofunnar. Hafa borgaryfirvöld boðið Samhjálp upp á tvo kosti til að mæta húsnæðisþörf samtakanna. Frétt af mbl.is Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi „Við fólum starfsfólki Reykjavíkurborgar í síðasta mánuði að fara í umfangsmikla leit að heppilegu húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar. Kaffistofan er ekki hluti af starfsemi Reykjavíkurborgar og ekki á okkar ábyrgð, en okkur er auðvitað umhugað um að henni finnist góður staður í Reykjavík svo starfsemin geti haldið óhindrað áfram,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið. „Niðurstaðan er sú að við höfum fundið tvö rými í eigu Reykjavíkurborgar sem við teljum að séu heppileg fyrir þessa starfsemi og við höfum sent Samhjálp upplýsingar um þessi rými og boðið þeim að skoða hvort þeim lítist vel á þau,“ segir Hildur. Spurð hvar umrætt húsnæði sé vill Hildur ekki greina frá því nákvæmlega á þessu stigi máls, en segir annað rýmið vera nálægt þeim stað þar sem starfsemin er núna, þ.e. í námunda við Fíladelfíukirkjuna, en hitt vestur á Granda. „Við bíðum eftir viðbrögðum frá Samhjálp og vonumst eftir því að þau verði jákvæð. Það skiptir mjög miklu máli að ekki verði rof á þjónustu Samhjálpar og ef það skapast eitthvert millibilsástand, þá munum við leita leiða til þess að leysa það og höfum jafnvel rætt hvort hreinlega sé unnt að bjóða þeim að vera í mötuneyti ráðhússins í nokkrar vikur ef þess gerist þörf til að brúa eitthvert bil,“ segir Hildur sem kveðst vonast eftir svörum Samhjálpar fljótlega. Þegar kaffistofu Samhjálpar var fundinn staður við Grensásveg kom fram óánægja íbúa í nágrenninu vegna þess. Spurð hvort það húsnæði sem Samhjálp bjóðist núna fyrir kaffistofu sína sé í næsta nágrenni við íbúðahverfi segir Hildur að svo sé ekki. Það sé fjær íbúðahverfum en t.a.m. húsnæðið við Grensásveg. „Við vitum að starfsemin verður sennilega umdeild hvar sem henni verður komið fyrir. En ég er viss um að þegar hún fer af stað muni koma í ljós að að henni er ekki það ónæði sem fólk hefur haft áhyggjur af,“ segir hún. [email protected] Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kaffistofunni var boðið húsnæði „Ég stranglega neita fyrir þetta“ Harry ósáttur við öryggisgæsluna eftir heimkomuna Spá þjálfara og fyrirliða – Haukar og ÍBV Íslandsmeistarar Eiga í sömu vandræðum og aðrir Umræðan Framtíðin undir hverjum völusteini Aðlögun, afkoma og markaðir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðvörun eftir að stífla brast í Tíbet Segir framburð brotaþola óstöðugan „Ég minnist hans með mikilli hlýju og þakklæti“ Þung staða á markaðnum Mest lesið Í gær Í vikunni Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Alvarlegar afleið­ingar fyrir hestinn Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Myndir: Merkingar rifnar niður á Húsavík Brotist inn á heimili í Árbænum Þung staða á markaðnum Góð stemning á Austurvelli Þúsund íslenska skriffinna þyrfti Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Styttir heimsókn sína til Íslands Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Upptaka: Áfram Ísland á Austurvelli Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Icelandair-vél lenti í Boston af öryggisástæðum Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » Kaffistofunni var boðið húsnæði „Ég stranglega neita fyrir þetta“ Harry ósáttur við öryggisgæsluna eftir heimkomuna Spá þjálfara og fyrirliða – Haukar og ÍBV Íslandsmeistarar Eiga í sömu vandræðum og aðrir Umræðan Framtíðin undir hverjum völusteini Aðlögun, afkoma og markaðir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki hægt að segja að lítil börn beiti ofbeldi Þung staða á markaðnum Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Nýr konungur Noregs verður Hákon VIII Mest lesið Í gær Í vikunni Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Alvarlegar afleið­ingar fyrir hestinn Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Myndir: Merkingar rifnar niður á Húsavík Brotist inn á heimili í Árbænum Þung staða á markaðnum Góð stemning á Austurvelli Þúsund íslenska skriffinna þyrfti Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Styttir heimsókn sína til Íslands Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Upptaka: Áfram Ísland á Austurvelli Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Icelandair-vél lenti í Boston af öryggisástæðum Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Loka

Share this article