Chevron og fleiri stór bandarísk orkufyrirtæki eru að nálgast samkomulag um að fjárfesta fyrir milljarða Bandaríkjadala í olíuvinnslu í Venesúela. Í frétt The Wall Street Journal segir að þetta gæti orðið pólitískur sigur fyrir Donald Trump Bandaríkjaforseta eftir margra mánaða samningaviðræður. Chevron nálgast samkomulag um að auka umsvif sín í Venesúela eftir að hafa verið með starfsemi þar í marga áratugi. Félagið gæti bætt við sig tveimur nýjum olíuríkum svæðum í Venesúela, að sögn heimildarmanna WSJ. Fyrirtækið á í dag stóra eignarhluti í þremur verkefnum í samstarfi við PdVSA og er eina stóra bandaríska fyrirtækið sem starfar í landinu. Halliburton, eitt stærsta bandaríska þjónustufyrirtækið á sviði olíuvinnslu, á einnig í viðræðum um að selja búnað og þjónustulausnir til olíuframleiðenda í Venesúela. Í kjölfar þess að bandarísk stjórnvöld handsömuðu Nicolás Maduro, þáverandi forseta Venesúela, í janúar reyndi Trump að sannfæra bandarísk olíufyrirtæki til að hefja olíuvinnslu í Venesúela á vanhirtum svæðum og talaði fyrir milljarða dala fjárfestingum í olíuiðnaði landsins.