- What: Discussion about rising ticket prices for international football matches
- Impact: Reflects broader trends in sports event pricing
Hér má sjá brot af því sem Björn skrifar á síðu sína, bjornberg.is: „Mikið hefur verið býsnast, fussað og dæst yfir miðaverðinu á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Hafa samtök knattspyrnuunnenda og fjölmiðlar bent á að allt að sjö sinnum dýrara verði fyrir hinn almenna stuðningsmann að fylgja sínu liði en fyrir fjórum árum og þrátt fyrir vilyrði alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA um að ódýrari miðar verði sannarlega í boði, munu fáir geta nálgast það sem hingað til hefur verið talin eðlileg verðlagning.“