Lýður Guðmundsson, annar stofnenda Bakkavarar, hefur að undanförnu byggt upp um 2,7% eignarhlut í Arion banka samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Ætla má að eignarhluturinn sé um 7 milljarðar króna að markaðsvirði. Frigus Invest ehf., fjárfestingarfélag Lýðs, eignaðist einnig yfir 5% hlut í Kviku banka í vor. Markaðsvirði eignarhlutar Frigusar í Kviku nemur í dag ríflega 3 milljörðum króna. Sjá einnig Lýður kominn með 3,7 milljarða hlut í Kviku Gera má því ráð fyrir að eignarhlutur hans í bönkunum tveimur hljóði upp á samtals 10 milljarða króna. Fjárfesting Lýðs í Arion og Kviku fylgir í kjölfar sölu Bakkavarar til írska matvælafyrirtækisins Greencore sem lauk í byrjun þessa árs. Lýður og bróðir hans Ágúst eignuðust um 22% hlut í sameinuðu félagi en fengu auk þess greitt hluta söluverðsins í reiðufé. Sjá einnig Kaupum Greencore á Bakkavör lokið Frigus Invest er orðinn ellefti stærsti hluthafi Arion banka. Aðeins einn einkafjárfestir á stærri hlut í Arion en Frigus, en það er fjárfestingarfélagið Stoðir sem á 5,0% hlut. Þess má þó geta að eignarhald Stoða er nokkuð dreift en fjárfestingarfélagið er í eigu yfir 120 hluthafa. Út frá því má segja að Lýður sé nú orðinn stærsti einstaki einkafjárfestirinn í hluthafahópi Arion banka.