Innlent | Morgunblaðið | 28.8.2026 | 20:40 Þriðjungs fjölgun fálka á Norðausturlandi Fálkaungarnir tveir sem hér má sjá klöktust úr eggjum sem orpið var í gömlum hrafnslaupi. Annað foreldri unganna er á sveimi við laupinn. mbl.is/Guðlaugur Albertsson Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Fálkum á Norðausturlandi hefur fjölgað um þriðjung frá því í fyrra, en fálkar voru taldir á rannsóknarsvæði Náttúrufræðistofnunar í landshlutanum. Svæðið telur 5.300 ferkílómetra og þar er að finna 88 þekkt fálkaóðul og reyndust 35 þeirra vera í ábúð. Þetta kemur fram á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar þar sem gerð er grein fyrir rannsóknum Ólafs K. Nielsen vistfræðings á fálkastofninum sem hann hefur stundað um árabil. Þessi fjölgun fálka á svæðinu nemur 40% en sumarið 2025 mældist minnsta ábúð fálka frá upphafi talninga. Fálkastofninn hefur látið undan síga undanfarin ár, en fálkinn hefur orðið hart úti vegna fuglaflensu sem nú sýnist í rénun. Rjúpan er aðalfæða fálkans og hefur stærð fálkastofnsins jafnan risið og hnigið í takt við ástand rjúpnastofnsins. Það virðist þó hafa breyst á meðan fuglaflensan herjaði hvað mest á fálkann. Faraldurinn sá hóst á Bretlandseyjum árið 2020 og barst flensan hingað til lands með farfuglum vorið 2021. Í skýrslu Ólafs kemur m.a. fram að frá ársbyrjun 2021 til mars 2026 hafi 26 fálkar verið skimaðir fyrir fuglaflensu, en allt voru það fuglar sem fundust dauðir eða deyjandi. Fjórtán þeirra reyndust smitaðir af flensu. Fyrsta staðfesta flensusmitið í fálka fannst í lok júlí 2021, en það síðasta í lok september 2025. Hafa engir flensusýktir villtir fuglar fundist á Íslandi síðan í mars 2026. Það er ekki bara rjúpan sem verður fyrir barðinu á fálkanum. Hér sést fálki gæða sér á fálka sem lét í minni pokann eftir harðan loftbardaga. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson Þar segir einnig að vöxtur fálkastofnsins á milli ára hafi að stórum hluta verið borinn uppi af ársgömlum fuglum. Af 29 óðalsfálkum sem voru aldursgreindir vorið 2026 voru sjö, eða tæpur fjórðungur, ársgamlir fuglar. Segir að sjaldgæft sé að svo ungir fálkar helgi sér óðul. Hátt hlutfall þeirra kunni bæði að endurspegla betri lifun ungfugla en undanfarna vetur og þann mikla fjölda óðala sem hefur verið í eyði. Svipuð þróun hafi sést hjá förufálkum á Bretlandseyjum og meginlandi Evrópu þegar stofnar taka að rétta úr kútnum eftir fuglaflensufaraldra. Fram kemur að hjá 12 fálkapörum hafi ungar komist úr hreiðri. Viðkoman, metin sem meðalfjöldi unga á hvert óðal í ábúð, hafi þó verið í slöku meðallagi þrátt fyrir gnægð rjúpna á svæðinu og góða tíð á varptíma. Hugsanlega sé skýringin sú að stór hluti varpstofns fálkans var nýliðar sem ekki höfðu reynt varp áður. Svo sem fyrr segir er rjúpa meginuppistaðan í fæðu fálkans. Sýndu rjúpnatalningar á Norðausturlandi að varpstofn rjúpu var sá stærsti frá upphafi rannsókna, sem hófust árið 1981. Skv. talningum var 14,1 karri á ferkílómetra og segir í skýrslunni að líklega þurfi að fara liðlega 70 ár aftur í tímann til að finna stærri rjúpnastofn á svæðinu. Í ljós kom við vöktun fálkastofnsins á svæðinu að eggjum hafði verið rænt úr einu fálkahreiðri og vöktunarvél við hreiðrið tekin. Segir að ummerki hafi bent til þess að hugsanlega hafi einnig verið átt við annað hreiður. „Slíkt athæfi er með öllu ólíðandi, ekki síst í ljósi þess að fálkinn hefur verið friðaður um áratugaskeið og stofninn dregist verulega saman undanfarin ár,“ segir í skýrslu Ólafs K. Nielsen. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Hákon skoraði gegn Evrópumeisturunum Íbúafjöldinn fimmfaldast á 50 árum Þriðjungs fjölgun fálka á Norðausturlandi Sannfærandi byrjun Bayern Á förum frá United Umræðan Framtíðin undir hverjum völusteini Víti til varnaðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Í hvort skiptið var verið að blöffa?“ „Ég minnist hans með mikilli hlýju og þakklæti“ Alvarlegar afleiðingar fyrir hestinn Fóru snemma úr vinnu fyrir mannskætt slys Mest lesið Í gær Í vikunni Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Alvarlegar afleiðingar fyrir hestinn Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Brynjar nýr formaður stjórnar Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Titringur á lokametrum baráttunnar Ríkisstjórnin taki falleinkunnina til sín Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Kaffistofunni var boðið húsnæði Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Styttir heimsókn sína til Íslands Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Upptaka: Áfram Ísland á Austurvelli Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Icelandair-vél lenti í Boston af öryggisástæðum Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Hákon skoraði gegn Evrópumeisturunum Íbúafjöldinn fimmfaldast á 50 árum Þriðjungs fjölgun fálka á Norðausturlandi Sannfærandi byrjun Bayern Á förum frá United Umræðan Framtíðin undir hverjum völusteini Víti til varnaðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaffistofunni var boðið húsnæði Áfengi gert „meira aðlaðandi og saklausara“ Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Þung staða á markaðnum Mest lesið Í gær Í vikunni Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Alvarlegar afleiðingar fyrir hestinn Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Brynjar nýr formaður stjórnar Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Titringur á lokametrum baráttunnar Ríkisstjórnin taki falleinkunnina til sín Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Kaffistofunni var boðið húsnæði Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Styttir heimsókn sína til Íslands Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Upptaka: Áfram Ísland á Austurvelli Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Icelandair-vél lenti í Boston af öryggisástæðum Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Loka