„Þegar þeir ná þessu skriði undir lokin þá slökknaði aðeins á eldinum sem var búinn að halda manni gangandi. Það var smá þreyta,“ sagði Tryggvi. Ísland var sjö stigum undir þegar skammt var eftir af þriðja leikhluta en Serbar stungu af í lokaleikhlutanum og unnu 102-73. Tryggvi er þó ánægður með frammistöðu íslenska liðsins lengst af í leiknum. „Ég er bara nokkuð sáttur við okkur. Meiri hlutann af leiknum vorum við bara mjög góðir. Héldum okkur inni en misstum þetta alveg úr höndunum þegar það voru svona sjö mínútur eftir.“ Tryggvi segir að liðið sé að komast í betra líkamlegt form og er bjartsýnn fyrir heimaleikinn gegn Tyrkjum á mánudagskvöld. Hann verður í beinni útsendingu á RÚV 2.