Viðskipti | Morgunblaðið | 29.8.2026 | 20:30 Mun draga úr framboði leiguíbúða Byggt í Hafnarfirði. Nýtt land var brotið undir byggð í hverfinu. Þar eru margar íbúðir til sölu. mbl.is/Eyþór Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Evran sem akkeri þjóðarsáttar Ríkisstjórnin taki falleinkunnina til sín „Sendir okkur bara enn þá frekari hvatningu“ Þung staða á markaðnum Sjaldgæfur fundur í Seðlabankanum » Fleiri tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Þung staða á markaðnum Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Segir stöðu fyrstu kaupenda ekki fara versnandi „Það tók enginn ábyrgð á þessari stöðu“ Kauptækifæri á fasteignamarkaði » Fleiri tengdar fréttir Egill Lúðvíksson, forstjóri Íveru íbúðafélags, segir skýr merki um að vaxtahækkanir Seðlabankans hafi dregið úr nýframkvæmdum við íbúðarhúsnæði að undanförnu. Það muni birtast í minna framboði íbúða, þ.m.t. leiguíbúða, þegar núverandi framkvæmdum lýkur. Ívera er stærsta einkarekna leigufélag landsins í íbúðarhúsnæði. Þegar Morgunblaðið ræddi við Egil fyrir réttu ári átti félagið 1.626 íbúðir og sagði hann við það tilefni félagið áforma að bæta 1.400 íbúðum við eignasafnið á næstu þremur árum. En hvernig skyldi það hafa gengið? „Við erum nú með 1.728 íbúðir og höfum gengið frá viðskiptum um kaup og uppbyggingu á fleiri íbúðum og verðum þá komin með um 2.200 íbúðir í heildina sem munu koma inn í eignasafnið 2026-2029,“ segir Egill. Keyptu á Höfðanum „Þá tel ég með verkefni sem við erum með í vinnslu en sum eru enn í hönnun. Við keyptum m.a. lóð á Ártúnshöfða fyrr á árinu og áformum þar uppbyggingu íbúða. Þannig að við erum með eignir sem eru allt frá því að vera tilbúnar til afhendingar í haust yfir í að vera í deiliskipulagsferli eða í hönnunarferli. Þannig að þessu miðar ágætlega. Það hefur þó alltaf legið fyrir að það er mjög metnaðarfullt markmið að vera komin með 3.000 íbúðir árið 2030. Hvort það markmið næst fer líka auðvitað eftir því hvort ytri aðstæður séu þannig að það sé skynsamlegt að fylgja því eftir,“ segir Egill. Stýrivextir Seðlabankans eru nú orðnir 8%. Hvaða áhrif hafa hærri vextir haft á vaxtaráform ykkar? „Þau hafa einna helst haft áhrif á umhverfið í kringum okkur, þ.e.a.s. hamlað eftirspurn á fasteignamarkaði og þannig haft áhrif á verktaka og þróunaraðila, sem aftur hefur áhrif á framgang verkefna á fyrstu stigum virðiskeðjunnar við uppbyggingu á íbúðarhúsnæði. Það er auðvitað á fyrstu stigum sem vaxtahækkanir byrja að hafa áhrif en þær hafa síður áhrif á verkefni sem eru komin vel á veg. Þannig að við finnum markvert fyrir því að dregið hefur úr nýframkvæmdum, að lóðir séu keyptar til að hefja framkvæmdir eða að áform séu samþykkt hjá fjármögnunaraðilum. Þeim fer sífækkandi, verkefnunum sem eru á fyrsta stigi.“ Á þá íbúðum, þ.m.t. leiguíbúðum, eftir að fjölga hægar en útlit var f yrir ? „Já, ég held að það sé ljóst. Við erum hins vegar að koma úr kúf þar sem uppbygging hefur verið ansi mikil. Gögn um fjölda eigna í byggingu eða eigna sem er verið að fullklára benda ekki til samdráttar, enda tekur uppbygging nokkur ár.“ Þannig að áhrifin af minna framboði koma fram 2028 eða 2029? „Já. Stundum er rætt um að það taki upp að ári fyrir vaxtahækkanir að bíta í hagkerfinu. Varðandi framboðshliðina á íbúðarhúsnæði ber að horfa til þess að það tekur langan tíma að byggja íbúðir. Það geta því liðið upp undir þrjú ár áður en vaxtahækkanir fara að hafa áhrif á framboð nýrra íbúða.“ Egill Lúðvíksson. Krefjandi vetur fram undan Telurðu að gera megi góð kaup í íbúðarhúsnæði við þessar aðstæður? „Ég þori ekki að fullyrða um það. Hitt er ljóst að það eru krefjandi aðstæður fram undan, allavega inn í veturinn, og erfitt að segja til um hvenær þetta snýst við. Það verður ekki betur séð en að íbúðum í sölu fari enn fjölgandi með hverri vikunni. Það er því erfitt að spá fyrir um hvenær botninum verður náð, rétt eins og á öðrum eignamörkuðum, en svona eru skammtímahorfur í framboði og eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði. Það er enn töluvert framboð á nýjum íbúðum og enn fleiri að koma á markað. Þá hefur það áhrif á eftirspurnina að hægt hefur á fólksfjölgun en samkvæmt síðustu tölum Þjóðskrár fækkaði erlendum ríkisborgurum í fyrsta sinn í langan tíma milli mánaða í ágúst.“ Hvað með langtímahorfur? „Þrátt fyrir að tímabundið hafi hægt á fólksfjölgun er íbúum landsins að fjölga ár frá ári og kaupmáttur hefur aukist. Gangurinn í íslensku hagkerfi hefur verið góður eftir að hagkerfið var endurreist og stoðunum sem hagkerfið hvílir á fer fjölgandi. Þá eru framtíðarhorfur í prótínframleiðslu, grænni orku og á fleiri sviðum bjartar, sem gefur tilefni til bjartsýni, sem og að við teljumst vera tiltölulega ung þjóð í evrópskum samanburði. Þegar við fjárfestum í íbúðum erum við að gera ráð fyrir að eiga eignirnar í áratugi. Þannig að við erum ekki mikið að spá í því hversu margar íbúðir koma á markaðinn á næstu 12 mánuðum, eða hvort það dragi tímabundið úr fólksfjölgun.“ Getur skapað tækifæri Tímabundin lækkun raunverðs íbúða er þá ekki mikið áhyggjuefni? „Nei, þvert á móti getur hún skapað tækifæri fyrir félög eins og Íveru en við höfum keypt flottar eignir á hagstæðu verði upp á síðkastið. Þannig að við getum að einhverju leyti nýtt okkur það og synt svolítið á móti straumnum þegar umhverfið er eins og það er í dag.“ Skapa aðstæðurnar kauptækifæri? Eruð þið að kaupa heila stigaganga? „Fyrst og fremst erum við að kaupa heilu húsin og jafnvel lóðir en aðkoma okkar að slíkum verkefnum getur verið með ýmsum hætti. Síðan breyting varð á eignarhaldi Íveru fyrir 28 mánuðum höfum við starfað í hávaxtaumhverfi og það hefur skapað hagfelldar aðstæður fyrir félag eins og okkar til að vaxa. Það gerir okkur enda samkeppnishæfari, hvort sem við erum að kaupa lóð eða koma inn í fjölbýlishúsaverkefni sem heildsölukaupandi á íbúðum. Þessu var öfugt farið á tímabili lágra vaxta í kjölfar covid en þá hækkaði íbúðaverð skarpt og verktakar og þróunaraðilar höfðu lítinn áhuga á að gefa eftir til að geta selt verkefnin í heild sinni og þannig minnkað áhættuna í þeim.“ Setja íbúðir í leigu Hvaða áhrif hefur þessi þróun samandregið á leigumarkaðinn? „Þetta vaxtaumhverfi og aðhaldið sem því fylgir er farið að hafa áhrif á framboðið. Þannig hefur framboð á leiguhúsnæði aukist um hér um bil 20% síðasta hálfa árið, miðað við fjölda eigna sem eru í auglýsingu, og það má örugglega rekja að einhverju leyti til þess að aðilar sem ætluðu að selja íbúðir eru farnir að leigja þær út í staðinn. Samhliða er eftirspurnin að gefa eftir, meðal annars vegna minni fólksfjölgunar.“ Stendur leiguverð á íbúðum í stað? „Já. Miðað við nýja leigusamninga og verðmyndun á markaði búa leigusalar við nokkuð krefjandi umhverfi og nýtingarhlutföll hjá leigusölum fara lækkandi, eftir að hafa verið ansi há í svolítinn tíma. Ég segi ekki að leiguverð sé að fara að lækka að nafnvirði en útlit er fyrir að markaðurinn verði nokkuð stöðugur á næstunni, eins og staðan er núna,“ segir Egill að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Evran sem akkeri þjóðarsáttar Ríkisstjórnin taki falleinkunnina til sín „Sendir okkur bara enn þá frekari hvatningu“ Þung staða á markaðnum Sjaldgæfur fundur í Seðlabankanum » Fleiri tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Þung staða á markaðnum Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Segir stöðu fyrstu kaupenda ekki fara versnandi „Það tók enginn ábyrgð á þessari stöðu“ Kauptækifæri á fasteignamarkaði » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dolly, vinnuþrælkun og ESB Sigurður Már Jónsson Pólitískir jarðskjálftar í lykilríkjum ESB Fleira áhugavert Kristrún segist bjartsýn: „Ég hef trú á þjóðinni“ Beint: Landsmenn ganga að kjörborðinu „Þetta er lýðræðisveisla“ Adrenalínið í botni allan tímann Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Evran sem akkeri þjóðarsáttar Sameina öflugt hráefni, nútímalega framleiðslu og einfalda þjónustu Sena kaupir hlut Arion í Glassriver Eiga í sömu vandræðum og aðrir Orbital kaupir lyfjaheildsöluna Alvogen American Airlines snúa aftur til Íslands Hagnaður Heima meira en fjórfaldaðist Samtök iðnaðarins hafna fullyrðingu Viðskiptaráðs Endaði á að moka ofan í holuna Kauptækifæri á fasteignamarkaði Orbital kaupir lyfjaheildsöluna Alvogen Eiga í sömu vandræðum og aðrir American Airlines snúa aftur til Íslands Hagnaður Heima meira en fjórfaldaðist Samtök iðnaðarins hafna fullyrðingu Viðskiptaráðs Kauptækifæri á fasteignamarkaði Sameina öflugt hráefni, nútímalega framleiðslu og einfalda þjónustu Endaði á að moka ofan í holuna Rótgróin hótel fá ný nöfn Viðskiptaráð hafnar fullyrðingum SI Rótgróin hótel fá ný nöfn Endaði á að moka ofan í holuna Kauptækifæri á fasteignamarkaði American Airlines snúa aftur til Íslands Stracta-hótelin á Hellu til sölu Halda áfram uppbyggingu í Þjórsárdal Guðmundur Fertram í nýju hlutverki Viðræðum Sýnar og Símans lokið án samnings Knútur Steinn ráðinn framkvæmdastjóri BMW á Íslandi Forstjóri Elkem Ísland tekur við nýju starfi Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dolly, vinnuþrælkun og ESB Sigurður Már Jónsson Pólitískir jarðskjálftar í lykilríkjum ESB Fleira áhugavert Þjóðin gerir upp hug sinn í dag Þykir vænt u