Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Oft verið hitamælir á hvað er í gangi“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.8.2026 | 1:20 „Oft verið hitamælir á hvað er í gangi“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í settinu hjá Rúv eftir fyrstu tölur. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Pétur: „Of mikil gjá í samfélaginu“ „Alveg lygilegt“ Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Snorri enn bjartsýnn þrátt fyrir stöðuna „Eitthvað sem gerðist síðasta sólarhring“ » Fleiri tengdar fréttir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir of snemmt að segja til um hvernig niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við ESB muni fara. Næstum hnífjafnt er samkvæmt nýjustu tölum, en miðað við talin atkvæði er jáið með 50,5% meðan neiið er með 49,5%. Hún segir að sú skipting sem hafi teiknast upp á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins leiði til þess að taka þurfi sérstaklega mið af þeim áhyggjum sem komi fram hjá landsbyggðinni ef jáið verði ofan á. Nefnir hún sérstaklega landbúnaðarmál, sjávarútveginn og auðlindarmál í því samhengi. Þetta var meðal þess sem kom fram í máli hennar í beinni útsendingu á Rúv eftir að fyrstu tölur úr öllum kjördæmum höfðu verið birtar. Ótrúlega ánægð með kjörsóknina Sagðist hún fyrst og fremst ótrúlega ánægð með kjörsóknina í dag og hversu áhugasamt fólk hefði verið um málið og verið til í að segja sína skoðun um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Sagði hún fullt af fólki hafa kynnt sér EES-samninginn á þessum tíma og að henni þætti ánægjulegt að sjá hversu margir teldu þann samning mikilvægan fyrir þjóðina. „Við þurfum að vanda okkur að verja þann samning,“ sagði Kristrún. Sagði hún að umræðunni hefði verið lyft upp á annað stig í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar meðal annars þar sem rætt hefði verið meira um alþjóðamál og hvað fólk væri ánægt með og hvað það væri óánægt með varðandi Ísland. Frétt af mbl.is Pétur: „Of mikil gjá í samfélaginu“ „Það er verið að endurskoða sambönd, bandalög og hreyfingar eru að breytast og við, eins og svo oft í sögunni, erum svolítið mitt á milli,“ segir Kristrún um alþjóðamálin. mbl.is/Eggert Jóhannesson Margra ára vegferð ef jáið verður ofan á Spurð út í hvað tæki við ef jáið yrði ofan á sagði Kristrún að við tæki margra ára vegferð sem fleiri ríkisstjórnir myndu koma að. Sagði hún það eina ástæðu þess að hún hafi ekki stigið fastar inn í umræðuna fyrr, sem og að hún teldi aðra eiga að taka þátt í þeirri umræðu. Kristrún var jafnframt spurð út í mikinn áhuga erlendra fréttamanna á atkvæðagreiðslunni. Sagði hún part af skýringunni vera miklar vendingar á alþjóðavettvangi upp á síðkastið. Ekki bara Grænlandsmálið sem Kristrún segist telja hafa fengið óþarflega mikla athygli. Nefndi hún viðskiptaþvinganir og aðgerðir Bandaríkjanna gegn Kanada. Einnig pólitíkin milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins upp á síðkastið. „Og aukin harka í diplómasíu sem hefur gert það að verkum að það er verið að endurskoða sambönd, bandalög og hreyfingar eru að breytast og við, eins og svo oft í sögunni, erum svolítið mitt á milli. Þannig að það er verið að horfa á okkur sem vísi til þess hvernig er verið að bregðast við og við höfum í gegnum tíðina oft verið hitamælir á hvað er í gangi.“ Hún sagðist jafnframt vita að mikið væri fylgst með málinu í Noregi, en þar hafa menn farið í gegnum þetta ferli tvisvar. Fengið hótanir, en ekki á sama stigi og Þorgerður Kristrún var einnig spurð út í það hvort hún hefði fengið hótanir svipaðar þeim sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, hefur fengið í tengslum við Evrópusambandsumræðuna. Gaf Kristrún til kynna að hún hefði fengið einhverjar hótanir, en að þær væru alls ekki á sama stigi og þær hótanir sem Þorgerður hefði fengið. Hún sagði þetta því miður eitthvað sem fólk í stjórnmálum í dag búi við. En ef niðurstaðan verður nei. Verður þetta mál úr sögunni? Sagði hún að þá væri málið úr sögunni á tímum þessarar ríkisstjórnar. Sagði hún jafnframt að þjóðaratkvæðagreiðslur væru ekki eitthvað sem fara ætti í reglulega. Hún tók hins vegar fram að alltaf gæti eitthvað utanaðkomandi breyst sem hefði áhrif. Frétt af mbl.is Beint: Talið upp úr kjörkössunum Tengdar fréttir Ísland og ESB Pétur: „Of mikil gjá í samfélaginu“ „Alveg lygilegt“ Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Snorri enn bjartsýnn þrátt fyrir stöðuna „Eitthvað sem gerðist síðasta sólarhring“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Pétur: „Of mikil gjá í samfélaginu“ „Oft verið hitamælir á hvað er í gangi“ „Alveg lygilegt“ Federer vígður inn í frægðarhöllina Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lentu í sjálfheldu í Reynisfjöru „Ísland skartar sínu fegursta í dag“ Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Við höldum að við munum hafa þetta“ Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Talið upp úr kjörkössunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Eitthvað sem gerðist síðasta sólarhring“ Glöð yfir að Íslendingum gangi svona vel Já-sinnar ærast úr fögnuði: „Þetta verður rússíbanareið“ Fyrstu tölur í SV: Hnífjafnt Snorri enn bjartsýnn þrátt fyrir stöðuna Jáið nær forskoti með Reykjavíkurtölum Gaman að sjá svo afgerandi tölur Myndskeið: Fagnaðarlæti í Hafnarhúsinu Beint: Talið upp úr kjörkössunum Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Enn þrengt að umferðinni Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Skipti um skoðun og telur nú að neiið hafi betur Dæmi um að börn fái ekki að fara með í skólaferðir Veðmálasíður spá í spilin: Tugir milljóna í húfi Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Beint: Talið upp úr kjörkössunum Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Nýjast á mbl.is » Pétur: „Of mikil gjá í samfélaginu“ „Oft verið hitamælir á hvað er í gangi“ „Alveg lygilegt“ Federer vígður inn í frægðarhöllina Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Oft verið hitamælir á hvað er í gangi“ Minna samfellt rennerí en áður Já-sinnar ærast úr fögnuði: „Þetta verður rússíbanareið“ „Ísland skartar sínu fegursta í dag“ Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Talið upp úr kjörkössunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Eitthvað sem gerðist síðasta sólarhring“ Glöð yfir að Íslendingum gangi svona vel Já-sinnar ærast úr fögnuði: „Þetta verður rússíbanareið“ Fyrstu tölur í SV: Hnífjafnt Snorri enn bjartsýnn þrátt fyrir stöðuna Jáið nær forskoti með Reykjavíkurtölum Gaman að sjá svo afgerandi tölur Myndskeið: Fagnaðarlæti í Hafnarhúsinu Beint: Talið upp úr kjörkössunum Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Enn þrengt að umferðinni Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Skipti um skoðun og telur nú að neiið hafi betur Dæmi um að börn fái ekki að fara með í skólaferðir Veðmálasíður spá í spilin: Tugir milljóna í húfi Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Beint: Talið upp úr kjörkössunum Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“

Share this article