Innlent | mbl | 30.8.2026 | 2:50 | Uppfært 3:30 Beint: Nei tekur forystuna Mynd 1 af 9 Nei-liðar hafa haft efni til að fagna í kvöld og í nótt, raunar eins og já-liðar. En nú hefur nei tekið forystuna. mbl.is/Eggert Jóhannesson Mynd 2 af 9 Frá kosningavöku nei-fylkingarinnar í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson Mynd 3 af 9 Góð stemning á kosningavöku já-liða í nótt. mbl.is/Eyþór Mynd 4 af 9 Í Hafnarhúsinu hafa gefist nokkur tilefni fyrir fögnuð í kvöld. mbl.is/Eyþór Mynd 5 af 9 Tölum fagnað á kosningavöku já-liða í Hafnarhúsinu. mbl.is/Eyþór Mynd 6 af 9 Erfitt getur reynst að leyna svipbrigðum þegar á færibandi eru bornar á borð tölur úr kjörkössunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Mynd 7 af 9 Formenn stjórnarandstöðuflokkanna þriggja spá í fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Mynd 8 af 9 Laugardalshöll fyrr í dag. Hér verða atkvæði fyrir Reykjavíkurkjördæmin tvö talin. mbl.is/Hákon Mynd 9 af 9 Kosið er í dag um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. mbl.is/Hákon Setja bókamerki Samantekt 03:24 Efsta frétt danska ríkisútvarpsins 03:15 Of mjótt á munum segir Politico 03:14 Frétt: Neiið komið yfir eftir tölur frá NA og S 03:12 Þingmaður skýtur á ríkismiðilinn Lokatölur eru teknar að berast upp úr kjörkössunum, sem leiða munu í ljós hvort Íslendingar vilji hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fleiri atkvæði hafa nú fallið nei í vil. Nýjustu tölur hverju sinni má nálgast hér . Hér fyrir neðan fylgjast með öllum nýjustu tíðindum sem tengjast atkvæðagreiðslunni, auk mynda, myndskeiða og frásagna af vettvangi. Ert þú með ábendingu eða mynd? Sendu okkur á [email protected] . 03:51 „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ „Það lítur út fyrir að neiið takið þetta, það þyrfti að vera mjög óvænt sveifla til að þetta fari yfir á jáið,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur í samtali við mbl.is, en hún bjóst við því að mjög mjótt yrði á munum. Meira 03:44 Von er á lokatölum Um klukkan fjögur frá Norðvestur- og Norðausturkjördæmi. Á milli klukkan fjögur og fimm frá Suðurkjördæmi. Þá er enn fremur búist við næstu tölum frá Suðvesturkjördæmi fyrir klukkan fimm. Ekki er ljóst hvort það verði lokatölur. 03:24 Efsta frétt danska ríkisútvarpsins 03:15 Of mjótt á munum segir Politico Iceland's vote on restarting talks on European Union membership is too close to call https://t.co/Il0QKn9CkE — POLITICO (@politico) August 30, 2026 03:14 Neiið komið yfir eftir tölur frá NA og S Neiið er nú komið með forskot á jáið eftir nýjar tölur frá Norðausturkjördæmi og Suðurkjördæmi. Eins og staðan er núna er jáið með 49,9% og neiið með 50,1%. Meira 03:12 Þingmaður skýtur á ríkismiðilinn NEI kemst yfir og þá slekkur RÚV auðvitað á útsendingu. Fréttamenn farnir heim snöktandi. — Sigríður Á. Andersen (@siggaandersen) August 30, 2026 03:11 Nýjar tölur úr Norðausturkjördæmi Aðrar tölur hafa borist úr Norðausturkjördæmi þegar talin hafa verið 15.000 atkvæði. Þau skiptast svona: Já: 6.087 eða 41,0% Nei 8.750 eða 59,0% Auðir: 90 Ógildir: 73 03:08 Nýjar tölur úr Suðurkjördæmi Þriðju tölur hafa borist úr Suðurkjördæmi þegar 22.189 atkvæði hafa verið talin. Þau skiptast svona: Já: 8.636 atkvæði eða 39,2% Nei: 13.397 atkvæði eða 60,8% Auðir: 89 Ógildir: 67 Á kjörskrá eru 42.136 03:06 Sigmundur Davíð í Íslandsgír pic.twitter.com/5VY0WVKM2P — Sigmundur Davíð (@sigmundurdavid) August 30, 2026 02:57 Forskot já minnkar líka í Reykjavík suður Lokatölur eru komnar í Reykjavíkurkjördæmi norður og líkt og í Reykjavíkurkjördæmi suður minnkar forskot já aðeins. Meira 02:50 Beint: Nei tekur forystuna Lokatölur eru teknar að berast upp úr kjörkössunum, sem leiða munu í ljós hvort Íslendingar vilji hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Meira 02:43 Dró saman milli já og nei í lokatölum Nokkuð dró saman með já-atkvæðum og nei-atkvæðum í síðustu tölum úr Reykjavíkurkjördæmi norður miðað við stöðuna eins og hún hafði verið áður. Meira 02:42 Nýjar tölur úr Suðvestur: Nei tekur fram úr Suðvesturkjördæmi hefur gefið út aðrar tölur næturinnar upp úr kjörkössunum. Meira 02:38 Kosningavökum er að ljúka Kosningavökum beggja fylkinga er nú að ljúka og eru bæði Hafnarhúsið og Kolaportið að tæmast. Draga virtist úr stemningu nei-sinna þegar jáið náði yfirhöndinni eftir fyrstu tölur úr Reykjavíkurkjördæmunum. Enn er þó óvíst með úrslitin og neiið hefur unnið á eftir að lokatölur bárust úr Reykjavíkurkjördæmi norður og nýjar tölur úr Suðvesturkjördæmi. Samkvæmt því sem Hafsteinn Einarsson stjórnmálafræðingur sagði í viðtali á RÚV stefna niðurstöðurnar í átt í það að nei muni sigra að lokum. 02:10 Jóhann Páll himinlifandi: „Hollt fyrir íslenskt samfélag“ Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kveðst himinlifandi með kjörsókn í nýyfirstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu og segir niðurstöðu hennar geta farið á hvorn veginn sem er. Meira Sýna meira Nýjast á mbl.is » „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Neiið komið yfir eftir tölur frá NA og S Forskot já minnkar líka í Reykjavík suður Beint: Nei tekur forystuna Dró saman milli já og nei í lokatölum Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við höldum að við munum hafa þetta“ Heimspressan á kjörstað: Já gæti ýtt við Noregi Minna samfellt rennerí en áður Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Nei tekur forystuna Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Eitthvað sem gerðist síðasta sólarhring“ „Alveg lygilegt“ Snorri enn bjartsýnn þrátt fyrir stöðuna Pétur: „Of mikil gjá í samfélaginu“ Glöð yfir að Íslendingum gangi svona vel Nýjar tölur úr Suðvestur: Nei tekur fram úr Já-sinnar ærast úr fögnuði: „Þetta verður rússíbanareið“ Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Beint: Nei tekur forystuna Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Enn þrengt að umferðinni Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Skipti um skoðun og telur nú að neiið hafi betur Dæmi um að börn fái ekki að fara með í skólaferðir Veðmálasíður spá í spilin: Tugir milljóna í húfi Beint: Nei tekur forystuna Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Nýjast á mbl.is » „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Neiið komið yfir eftir tölur frá NA og S Forskot já minnkar líka í Reykjavík suður Beint: Nei tekur forystuna Dró saman milli já og nei í lokatölum Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ísland skartar sínu fegursta í dag“ „Þetta er lýðræðisveisla“ Ákvörðunin þröng og ólýðræðisleg Adrenalínið í botni allan tímann Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Nei tekur forystuna Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Eitthvað sem gerðist síðasta sólarhring“ „Alveg lygilegt“ Snorri enn bjartsýnn þrátt fyrir stöðuna Pétur: „Of mikil gjá í samfélaginu“ Glöð yfir að Íslendingum gangi svona vel Nýjar tölur úr Suðvestur: Nei tekur fram úr Já-sinnar ærast úr fögnuði: „Þetta verður rússíbanareið“ Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Beint: Nei tekur forystuna Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Enn þrengt að umferðinni Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Skipti um skoðun og telur nú að neiið hafi betur Dæmi um að börn fái ekki að fara með í skólaferðir Veðmálasíður spá í spilin: Tugir milljóna í húfi Beint: Nei tekur forystuna Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“