- What: Annual street festival in Copenhagen canceled due to heavy rain
- Impact: Public event affected by weather conditions
Rigningarveður hefur leitt til þess að árlegri útihátíð á Nørrebrogötu í Kaupmannahöfn hefur verið aflýst. Á Strikinu í Kaupmannahöfn, þekktustu göngugötu Danmerkur.RÚV / Hallgrímur Indriðason Á þesum degi er lokað fyrir umferð bíla og hjólreiðafólks svo öryggi gangandi vegfarenda sé tryggt. Frá þessu er greint á Facebook-síðu hverfisráðs Norðurbrúar sem kveðst harma að ekkert verði af viðburðinum. Spáð er úrhellisskúrum og í morgun hefur rignt inn afboðunum frá þátttakendum, þar á meðal krítarlistamönnum og jógakennurum, enda þurrviðri þeim nauðsynlegt. Auk þess óttast hverfisráðið að hjólafólk og bílstjórar átti sig ekki á lokuninni verði fámenni á götunni. Ekkert verður því af bíllausu hátíðinni á Nørrebrogötu þetta árið.