Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Niðurstaðan mikill ósigur fyrir ríkisstjórnina

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.8.2026 | 14:20 Niðurstaðan mikill ósigur fyrir ríkisstjórnina Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Utanríkismálanefnd kölluð saman „Verðum að bera virðingu fyrir öllum sjónarmiðum“ „Ljóst að ungt fólk réði niðurstöðu kosninganna“ „Til hamingju Ísland“ » Fleiri tengdar fréttir „Mér er mjög létt og ég er í raun himinlifandi yfir því að það hafi gengið eftir það sem ég trúði nú alltaf að yrði niðurstaðan, að Íslendingar vilji, þegar á hólminn er komið, ráða sér sjálfir.“ Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, við mbl.is eftir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar þar sem íslenskir kjósendur höfnuðu því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið. Frétt af mbl.is Íslendingar hafna aðildarviðræðum Þjóðin klofin en ákveðinn hópur sameinaður Sigmundur segist einnig vera afskaplega þakklátur öllu því fólki sem lagði á sig gríðarlega vinnu við að berjast fyrir niðurstöðunni. „Maður hefur kynnst fólki úr mjög ólíkum áttum sem kom saman og varð mjög sterkt afl, sterkur hópur saman. Þannig að það má segja að ríkisstjórnin sé búin að, þrátt fyrir að hafa klofið þjóðina með þessu, þá sé hún búin að sameina að nokkru leyti gagnrýnendur sína eða stjórnarandstöðu af ýmsum toga,“ segir Sigmundur. Fólk hafi séð í gegnum auglýsingabrellur Hann telur niðurstöðu kosninganna mikinn ósigur fyrir ríkisstjórnina, þá sérstaklega vegna þess hvernig til málsins var stofnað. „Það var farið út í þetta mjög skyndilega. Við heyrðum fyrst að það stæði til úr erlendum fjölmiðlum að ákveða að böðla þessu í gegnum þingið sem hraðast og hafa atkvæðagreiðsluna um sumar þegar það er takmarkað ráðrúm til stjórnmálaumræðu. Svo verð ég nú að nefna það að mér fannst nálgunin hjá þeim afskaplega sérkennileg, að reyna að halda því fram og telja fólki trú um það að það að sækja um aðild að Evrópusambandinu, biðja um að fá að ganga í það, snúist um eitthvað annað en viljann til að ganga í Evrópusambandið.“ Segir Sigmundur fólk þó hafa séð í gegnum það og telur hann að ef umræðan hefði verið meiri og dýpri og farið fram við eðlilegar aðstæður þá hefði munurinn verið enn meiri, nei-hliðinni í vil. Frétt af mbl.is „Þetta er nei sem svíður í Brussel“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins og Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins á kosningavöku Áfram Ísland í gærkvöldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ríkisstjórnin tvímælalaust löskuð Spurður hvernig hann sjái fyrir sér framtíð ríkisstjórnarinnar eftir niðurstöðuna segir hann hana tvímælalaust verulega laskaða vegna þess hve mikið var lagt undir. „Það var farið í þetta með þessum óvenjulega hætti og forsætisráðherrann var síðast í gær eða í fyrradag til dæmis mjög gagnrýninn á þá sem ætluðu að segja nei,“ segir hann og bætir við að það verði ekki litið fram hjá því að þetta olli gríðarlegum klofningi í samfélaginu. „Nú er það þá ríkisstjórnarinnar að reyna að lappa upp á ástandið og ná þjóðinni saman og það gerir hún ekki öðruvísi en með því að koma til, í fyrsta lagi auðvitað að virða niðurstöður þeirra sem sögðu nei gagnvart Evrópusambandinu, en líka koma til móts við þann stóra hóp sem sagði já, með því að bregðast við áhyggjum þess fólks, fólksins sem trúði því að einhver Evrópusambandsaðferð gæti verið lausnin á áhyggjum sínum.“ Frétt af mbl.is „Skýrasta svar lýðveldistímans“ Dæmi um afsagnir eftir tap í þjóðaratkvæðagreiðslu Hann segir að velta megi því fyrir sér hvort að í öðrum löndum hefði ekki verið gerð krafa um að stjórnin færi frá. „Eða allavega þeir sem báru mesta ábyrgð á þessu,“ segir hann og nefnir að þegar David Cameron, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, tapaði Brexit-baráttunni hafi hann strax sagt af sér og bendir Sigmundur á að hann hafi tapað með minni mun en við sjáum í niðurstöðum okkar þjóðaratkvæðagreiðslu. „Ég geri nú ekki ráð fyrir að þær hugsi sér að gera það. Þær voru búnar að ákveða að halda sameiginlegan blaðamannafund, væntanlega til þess að passa upp á að það sé hægt að stjórna því hvað hver segir og reyna að halda liðinu saman.“ Frétt af mbl.is „Umsóknin verði formlega dregin til baka“ Tengdar fréttir Ísland og ESB „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Utanríkismálanefnd kölluð saman „Verðum að bera virðingu fyrir öllum sjónarmiðum“ „Ljóst að ungt fólk réði niðurstöðu kosninganna“ „Til hamingju Ísland“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Niðurstaðan mikill ósigur fyrir ríkisstjórnina „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Guðmundur og Andra fögnuðu með fimmtíu manns Arsenal selur sóknarmanninn til Barcelona Utanríkismálanefnd kölluð saman Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við höldum að við munum hafa þetta“ Fyrstu tölur gætu borist skömmu eftir miðnætti „Verðum að bera virðingu fyrir öllum sjónarmiðum“ Beint: Úrslitin ráðin Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Úrslitin ráðin Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ „Alveg lygilegt“ Pétur: „Of mikil gjá í samfélaginu“ Beint: Úrslitin ráðin Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Enn þrengt að umferðinni Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Skipti um skoðun og telur nú að neiið hafi betur Dæmi um að börn fái ekki að fara með í skólaferðir Veðmálasíður spá í spilin: Tugir milljóna í húfi Beint: Úrslitin ráðin Steinn Ármann Magnússon er látinn Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Nýjast á mbl.is » Niðurstaðan mikill ósigur fyrir ríkisstjórnina „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Guðmundur og Andra fögnuðu með fimmtíu manns Arsenal selur sóknarmanninn til Barcelona Utanríkismálanefnd kölluð saman Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Við höldum að við munum hafa þetta“ Heimspressan á kjörstað: Já gæti ýtt við Noregi „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Úrslitin ráðin Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ „Alveg lygilegt“ Pétur: „Of mikil gjá í samfélaginu“ Beint: Úrslitin ráðin Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Enn þrengt að umferðinni Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Skipti um skoðun og telur nú að neiið hafi betur Dæmi um að börn fái ekki að fara með í skólaferðir Veðmálasíður spá í spilin: Tugir milljóna í húfi Beint: Úrslitin ráðin Steinn Ármann Magnússon er látinn Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“

Share this article