Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ísland áfram náið samstarfsríki Evrópusambandsins

Read Full Article →

Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, hefur verið í skeytasambandi við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra eftir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar varð ljós. Þetta kemur fram í skilaboðum Mariu Tomasik, talskonu Costa, til fjölmiðla síðdegis. Vilji til að efla samstarf Íslands og Evrópusambandsins Í skilaboðunum segir enn fremur að Costa hafi ítrekað þá virðingu sem Evrópusambandið beri fyrir lýðræðislegu vali Íslendinga og að Ísland sé áfram eitt af nánustu samstarfsríkjum Evrópusambandsins, ekki síst í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Talskona Costa segir enn fremur að leiðtogarnir tveir hafi staðfest vilja sinn til að efla samstarf Íslands og Evrópusambandsins. Fréttastofa RÚV kallaði í dag einnig eftir viðbrögðum frá framkvæmdastjórn ESB. Talsmaður þar sendi fréttastofu eftirfarandi skilaboð síðdegis: Framkvæmdastjórnin hefur meðtekið niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi og virðir ákvörðun íslensku þjóðarinnar. Ísland er áfram náið samstarfsríki Evrópusambandsins.

Share this article