Innlent | mbl | 30.8.2026 | 18:25 Nei við viðræðum ekki já við óbreyttu ástandi Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Þjóðlegir íhaldsmenn höfðu betur á landsbyggðinni Halla tjáir sig um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar Segir unga fólkið hafa sigrað ESB virðir vilja íslensku þjóðarinnar Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? » Fleiri tengdar fréttir Samtök iðnaðarins brýna stjórnvöld til að ráðast tafarlaust í nauðsynlegar umbætur til að efla samkeppnishæfni og ná tökum á efnahagsmálum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum. „Nei við aðildarviðræðum er ekki já við óbreyttu ástandi,“ er haft eftir Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, í tilkynningunni. „Lækka þarf verðbólgu og vexti, tryggja næga raforku, hraða uppbyggingu innviða, einfalda regluverk og styrkja umhverfi fjárfestinga og nýsköpunar. Þessi verkefni hverfa ekki með niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þau verðum við að leysa sjálf.“ Niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um hvort Ísland ætti að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið lágu fyrir á tíunda tímanum í morgun. Atkvæðin skiptust þannig að 52,8% kjósenda kaus nei og var aðildarviðræðum við sambandið þar með hafnað. Frétt af mbl.is Íslendingar hafna aðildarviðræðum Vilja ná saman um aðgerðir Kalla samtökin eftir þjóðarsátt þar sem stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins ná saman um aðgerðir til þess að ná verðbólgu niður og auka verðmætasköpun til að efla lífskjör. „Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar breytir ekki þeirri staðreynd að Evrópa er mikilvægasta markaðssvæði íslensks iðnaðar og EES-samningurinn er mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands. Stór hluti íslensks iðnaðar starfar á innri markaði Evrópu og sameiginlegt regluverk tryggir íslenskum fyrirtækjum aðgang að honum,“ segir í tilkynningunni. Ísland þurfi að beita sér fyrr og af meiri þunga Segir þar einnig að samtökin undirstriki því mikilvægi EES-samningsins og kalli eftir skýrri stefnu stjórnvalda um hvernig Ísland ætli að tryggja betur rekstur hans. Ísland þurfi að beita sér fyrr og af meiri þunga við mótun EES-löggjafar og gæta þess að íslensk fyrirtæki búi ekki við gullhúðun regluverks. Auk þess þurfi að tryggja þátttöku þeirra á evrópskum mörkuðum, í samstarfsáætlunum og nýrri iðnaðar- og öryggisstefnu Evrópu. Vilja aukið samráð við atvinnulífið Hvetja Samtök iðnaðarins því stjórnvöld til aukins og reglubundins samráðs við atvinnulífið um EES-mál. Segja þau að ráðast þurfi í sérstakt átak til að vinna á innleiðingarhalla, auka gagnsæi um stöðu mála og skapa fyrirtækjum meiri fyrirsjáanleika. Jafnframt þurfi að koma í veg fyrir óþarfa gullhúðun við innleiðingu evrópskra reglna. „Niðurstaðan felur einnig í sér að Ísland mun áfram byggja alþjóðlega viðskiptastefnu sína á EFTA-samstarfinu og eigin viðskiptasamningum. Því þarf að tryggja virka hagsmunagæslu Íslands á vettvangi EFTA gagnvart gildandi fríverslunarsamningum og á sama tíma sækja fram á nýjum mörkuðum.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Þjóðlegir íhaldsmenn höfðu betur á landsbyggðinni Halla tjáir sig um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar Segir unga fólkið hafa sigrað ESB virðir vilja íslensku þjóðarinnar Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Nei við viðræðum ekki já við óbreyttu ástandi Hjörtur var hetjan Þjóðlegir íhaldsmenn höfðu betur á landsbyggðinni Segir unga fólkið hafa sigrað Robbie Williams íhugar að fá sér hárkollu Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dró saman milli já og nei í lokatölum Heimspressan á kjörstað: Já gæti ýtt við Noregi Lentu í sjálfheldu í Reynisfjöru Utanríkismálanefnd kölluð saman Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ „Þetta er nei sem svíður í Brussel“ „Alveg lygilegt“ Beint: Brugðist við niðurstöðunum Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Enn þrengt að umferðinni Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Skipti um skoðun og telur nú að neiið hafi betur Dæmi um að börn fái ekki að fara með í skólaferðir Veðmálasíður spá í spilin: Tugir milljóna í húfi Beint: Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Íslendingar hafna aðildarviðræðum „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Nýjast á mbl.is » Nei við viðræðum ekki já við óbreyttu ástandi Hjörtur var hetjan Þjóðlegir íhaldsmenn höfðu betur á landsbyggðinni Segir unga fólkið hafa sigrað Robbie Williams íhugar að fá sér hárkollu Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint: Brugðist við niðurstöðunum Myndir: Styttist í að kjörstöðum verði lokað Minna samfellt rennerí en áður Íslendingar hafna aðildarviðræðum Mest lesið Í gær Í vikunni Beint: Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ „Þetta er nei sem svíður í Brussel“ „Alveg lygilegt“ Beint: Brugðist við niðurstöðunum Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Enn þrengt að umferðinni Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Skipti um skoðun og telur nú að neiið hafi betur Dæmi um að börn fái ekki að fara með í skólaferðir Veðmálasíður spá í spilin: Tugir milljóna í húfi Beint: Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Íslendingar hafna aðildarviðræðum „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“