FH tók á móti Keflavík þar sem mikilvæg stig voru í boði fyrir Hafnfirðinga sem voru aðeins tveimur stigum frá fallsæti. Keflavík sat í 5. sæti. Það voru gestirnir frá Keflavík sem áttu fyrsta orðið. Stefan Ljubicic átti skot utan teigs sem rataði í markið, 1-0 fyrir Keflvíkinga eftir 23 mínútna leik. Það liðu aðeins fjórar mínútur þar til Gils Gíslason jafnaði fyrir FH eftir stoðsendingu Erlings Agnarssonar, 1-1. Þannig stóð í hálfleik en á 52. mínútu haf Gils stoðsendingu á Kjartan Kára Halldórsson sem kom FH í 2-1 og það reyndist jafnframt sigurmarkið. Stigin eru dýrmæt fyrir Hafnfirðinga sem eru eftir sem áður í níunda sæti en nú fimm stigum frá botni. Glæsimark Kristófer tryggði stig Fram tók á móti KA í Úlfarsárdal. Fram er í 3. sæti en KA á botni deildarinnar og það var því afar kærkomið fyrir Akureyrarliðið þegar Guðjón Ernir Hrafnkelsson kom KA-mönnum 1-0 yfir með marki á fjórtándu mínútu. Fram sem gat með góðum úrslitum komið sér upp í annað sætið, í það minnsta þar til á morgun, jafnaði þó áður en fyrri hálfleikur kláraðist og það sá Bandaríkjamaðurinn Kyle McLagan um að gera. Skyndisóknir reyndust KA gjöfular í leiknum, ekki síst þar sem Framarar voru seinir til baka um leið. Adam Ægir Pálsson kom KA yfir í 2-1 eftir hraða sókn á 50. mínútu. En fallegasta mark leiksins kom tíu mínútum fyrir leikslok. Jakob Byström sendi á Kristófer Konráðsson sem þrumaði svo boltanum utan teigs í slána og inn og jafnaði þar með í 2-2. Framarar reyndu hvað þeir gátu að skora sigurmark en lánaðist það ekki og 2-2 jafntefli var niðustaðan sem færir Fram þó upp í 2. sætið um sinn en heldur KA sem fastast á botninum. 21. umferðinni lýkur á þriðjudag.