Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Árásir hefjast að nýju á Hormússundi og á herstöðvar í Jórdaníu

Read Full Article →

Bandaríkjaher hóf árásir að nýju á Íran í kvöld eftir um mánaðarlangt hlé. Árásirnar voru gerðar á tvo eldflaugaskotpalla Írana á Larak-eyju, samkvæmt upplýsingum frá bandaríska hernum. Íranski byltingarvörðurinn svaraði með árásum á tvær herstöðvar Bandaríkjanna í Íran. Íranskur ríkisfjölmiðill segir að eldflaugaárásir Írana hafi valdið miklu tjóni. Jórdanski herinn segir að loftvarnakerfi þeirra hafi skotið niður átta eldflaugar Írana. Þetta eru fyrstu árásir Bandaríkjahers á Írana síðan seint í júlí. Þó að dregið hafi úr átökum um tíma hafa Bandaríkin hert enn frekar viðskiptaþvinganir gegn Íran. Diplómatar í Pakistan og Katar hafa reynt að miðla málum milli Írana og Bandaríkjamanna mánuðum saman en án árangurs.

Share this article