Ríkissjóður Íslands hefur auglýst til Tollhúsið að Tryggvagötu 19 í Reykjavík. Fasteignasalan Torg birti heilsíðuauglýsingu um eignina í Morgunblaðinu í dag. „Húsið er að stærstum hluta innréttað sem skrifstofuhúsnæði. Hluti jarðhæðar er í útleigu og hýsir starfsemi Kolaportsins.“ Húsið er alls 10.150,8 fermetrar að stærð. Fasteignamat eignarinnar nemur 4.725 milljónum króna og brunabótamat 6.001 milljón króna. Skráð byggingarár er 1968 en húsið var tekið í notkun árið 1971, samkvæmt vef Skattsins. Óskað er eftir tilboðum í eignina. „Stærð eignarinnar, staðsetning og aðstæður á svæðinu skapa fjölbreytta möguleika til framtíðarnýtingar og þróunar, að teknu tilliti til gildandi skipulags og annarra opinberra kvaða.“ Starfsemi Tollsins var flutt úr Tollhúsinu í nýtt húsnæði Skattsins í Katrínartúni 6 árið 2023.